Fjórir ungir menn hafa verið handteknir grunaðir um að svipta mann frelsi sínu og fara með upp í Heiðmörk síðdegis í gær. RÚV greinir frá þessu en fullyrt er að meintir gerendur séu á tvítugsaldri.
Mennirnir eru sagði hafa barið þolanda árásarinnar með kylfu og hafa notað úðavopn á hann. Að lokum var maðurinn látinn vaða út í kalt vatnið og skilinn þar eftir.
Maðurinn var fluttur með sjúkrabíl á bráðadeild en hann var orðinn kaldur þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang.
Unglingarnir hafa ekki verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald og vildi lögregla ekkert gefa upp um hvort árásin væri svokölluð handrukkun.