fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Kristinn tengir sjálfsvíg við þöggun karlmanna: „Sjálfur hef ég heyrt af mönnum sem hafa gefist upp og tekið sitt eigið líf“

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 11. september 2019 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristinn Sigurjónsson, fyrrverandi lektor við HR, skrifaði pistil sem birtist á Viljanum í gær. Í pistlinum virðist vera sem Kristinn tengi sjálfsvíg við þöggun karlmanna og forræðisdeilur. Kristinn er hvað best þekktur fyrir að hafa verið rekinn frá HÍ í kjölfar þess að hafa sagt konur eyðileggja vinnustaði karla.

Dagurinn í gær var dagur gegn sjálfsvígum og segir Kristinn titilinn á pistlinum, Á engra vörum, vera valinn vegna falins vanda sem enginn vill tala um.

„Undanfarið hafa verið miklar umræður um sjálfsvíg, þegar einstaklingur ákveður að enda sitt líf, þá er það vegna þess að honum finnst allt ganga sér í óhag. Orsakirnar geta verið margvíslegar, mest hefur verið skrifað um þá sem ánetjast eiturlyfjum og lenda þannig annað hvort í blindgötu eða missa geðheilsuna sem er algengur fylgifiskur eiturlyfjanna.“

Kristinn segir þá feður sem lenda í tálmunum upplifa það að kerfið sé að vinna gegn þeim.

„Því það gerist ekkert þrátt fyrir áralanga baráttu og milljóna kostnað. Í umgengnisdeilunum verða þeir fyrir fölskum ásökunum um ofbeldi og það jafnvel kynferðislegt. Fjölmiðlar bregðast algjörlega í þessu og birta fréttina eins og hér sé rökstuddan grun að ræða.“

„Ráðist á þá af fjölmiðlum“

Kristinn kemur með dæmi um það þegar honum fannst fjölmiðlar hafa brugðist í svona máli.

„Mér er minnistætt þegar fréttamaður RÚV sagði beint út að faðir væri grunaður um kynfeðislegt ofbeldi í máli sem þá var í fjölmiðlum. Í þessu máli eins og í öllum hinum var enginn fótur fyrir þessu, en faðirinn er ekki bara dæmdur af fjölmiðlum heldur líka af samfélaginu. Þeir fá hvergi vinnu, enginn vill tala við þá og ef þeir reyna að bera hönd fyrir höfuð sér, þá er ráðist á þá af fjölmiðlum af enn meiri hörku og kommentakerfið fylgir eftir fyrirsögninni með endalausum svívirðingum og fordæmingum,

Kristinn segir tvo fjölmiðla vera sérlega athafnasama þegar kemur að því að ráðast á karlmenn og feður. Hann segir þó ekki hvaða fjölmiðlar það eru.

„Þessir feður eiga svo líka sína fjölskyldu sem les þetta í fjölmiðlum, sem gerir stöðu þeirra enn verri, því ásakanirnar og innrætingin er svo gegndarlaus, að fólk fer að trúa því að faðirinn sé ómenni. Ofan á allt þetta er svo barninu innrætt að faðirinn sé óhæfur aumingi. Margir trúa því að þegar barnið vaxi úr grasi þá lagist þetta, en ég þekki nokkur dæmi þar sem uppkomin börn virða feður sína eins og þeir séu úrhrak vegna innrætingar í æsku, það er að segja foreldrafirringar.“

Kristinn segist hafa nánast aldrei séð einhverja umfjöllun í fjölmiðlum um að karlmenn geti líka verið fórnarlömb á þeirri hálfu öld sem hann hefur fylgst með málunum.

„Þegar reynt er að laga þetta, þá er ráðist á þá sem það vilja og ber þar hæst þingmaðurinn Brynjar Nielsson sem hefur orðið fyrir gegndarlausum árásum vegna frumvarps til að leysa þetta. Sjálfur hef ég heyrt af mönnum sem hafa gefist upp og tekið sitt eigið líf, frægast er þó Hage málið sem gerðist 1984 og endaði með því að Atle Joar Hage var kominn í blindgötu og tók sitt eigið líf og síðar var því úrskurður dómstóla að þetta hafi verið mesta réttarmorð Noregs.  Örlítið hefur verið skrifað um þetta í erlendum fagtímaritum og blöðum og þar verið bent á að sjálfsmorð fráskyldra feðra sem standa í umgengnisdeilum er margfalt hærri en annarra feðra. Því miður eru þessi mál þögguð í hel og þar sem bryddað hefur verið á því að kanna þessi mál, þá kemur holskefla af niðrandi tali um að það sé óþarfi. Gott dæmi um þetta er umræðan um karlaathvarf.“

„Enginn stuðningur fyrir karlmenn“

Kristinn talar síðan um karlaathvarf en hann segir höfnun, vantrú og niðurlægingu vera það sem valdhafar gefa frá sér í tengslum við efnið.

„Hópur fólks sem hefur reynt að bera blak af ásökunum á feður, stofnaði karlaathvarf sem er í reynd núna ekkert nema kennitala og það tókst ekki þrautalaust, þar sem þeir fá engan stuðning hjá valdhöfum, heldur bara höfnun, vantrú og niðurlægingu. Á sama tíma geta [konur] leitað til kvennaathvarfsins og fengið þar aðstoð og lögfræðiaðstoð í forræðisdeilum á kostnað skattgreiðenda, þá er enginn stuðningur fyrir karlmenn sem eru í umgengnisdeilum.“

Samkvæmt Kristinni ríkir mikil þöggun í þessum efnum. Máli sínu til stuðnings bendir Kristinn á viðtal Vísis við verkefnastýru Bjarkarhlíðar en hann segir hana hafa horfið af forsíðunni samdægurs og að hún finnist ekki þegar leitað er að henni.

„Síðastliðinn sunnudag var viðtal við verkefnastýru Bjarkarhlíðar,  þar sem hún rekur mikla aukningu í komum karlmanna þangað. Þessi frétt hverfur nær samdægurs af forsíðu Vísis og þegar leitað er að henni (daginn eftir) þá finnst hún ekki, þvílík er þöggunin, en það er búið að tala um nauðsyn karlaathvarfs að minnsta kosti síðan 2005, þegar þáverandi formaður félags um ábyrga feður (forveri félags um foreldrajafnrétti) benti þáverandi borgarstjóra, Steinunni Valdísi Óskarsdóttur, á að 7% feðra sem leita til félagsins hafa kvartað undan líkamlegu ofbeldi af hendi sambýliskvenna sinna og er þá ótalið andlega ofbeldið eins og að þeir fái aldrei að sjá börnin sín, sem er nokkuð algengt.“

Það tók blaðamann þó ekki langan tíma að finna fréttina sem um ræðir en fréttin var sú fyrsta sem kom upp þegar leitað var eftir verkefnastýru Bjarkarhlíðar í tenglum við Vísi. Fréttin er öllum aðgengileg á netinu.

Fréttin sem Kristinn fann ekki

Kristinn er viss um það að hægt sé að losna við marga af þeim harmleikjum sem koma upp í samfélaginu.

„Ég er sannfærður um að ef aðstæður foreldra væru jafnaðar og farið eftir 7. gr barnasáttmála sameinuðu þjóðanna sem nefnir rétt barns til að þekkja báða foreldra sína þá væri hægt að losna við margan harmleikinn í samfélaginu.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“
Fréttir
Í gær

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“
Fréttir
Í gær

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work