fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Snarpur skjálfti nærri Siglufirði

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 24. júlí 2019 03:36

Skjálftinn við Siglufjörð er merktur með grænni stjörnu. Mynd:Veðurstofan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan 00.55 í nótt reið snarpur jarðskjálfti yfir nærri Siglufirði. Skjálftinn mældist 4,6 og átti upptök um 20 km NNV af Siglufirði. Hann varð vegna jarðskorpuhreyfinga á Tjörnesbrotabeltinu og varð þar sem suðurendi Eyjafjarðaráls og vesturhluti Húsavíkur-Flateyjarmisgengisins mætast.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofunni. Segir að skjálftinn hafi fundist allt frá Blönduósi í vestri austur á Húsavík í austri. Búast má við eftirskjálftum. Eftirskálftar hafa mælst, sá stærsti 2,6 að stærð. Upptök stóra skjálftans og eftirskjálftanna virðast vera á 8 til 10 km dýpi.

Svæðið er þekkt jarðskjálftasvæði og má þar nefna að hrina varð þar haustið 2012 en þá mældust stærstu skjálftarnir 5,6 og 5,4 að stærð. Á síðasta ári urðu þrír skjálftar stærri en 3 á svæðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi