Gunnar Nelson er kominn með nýjan andstæðing, hinn brasilíska Thiago Alves, en þeir munu berjast í Kaupmannahöfn þann 28. september.
Thiago Alves er 35 ára gamall og hefur barist 37 atvinnubardaga í MMA, þara af unnið 24 og tapað 13.
Alves hefur lengi verið í UFC en hann barðist um veltivigtartitilinn á UFC 100 gegn goðsögninni Georges St. Pierre.
Alves tapaði sínum seinasta bardaga á dómaraákvörðun líkt og Gunnar sem tapaði gegn Leon Edwards í mars.
Þetta verður fyrsta bardagakvöld UFC í Danmörku, en bardaginn verður að öllum líkindum ekki aðalbardagi kvöldsins.