Greiðsluþjónustan Apple Pay varð nýverið aðgengileg hér á landi og hafa margir lýst yfir ánægju sinni með þægindin sem henni fylgir. Apple Pay gerir notendum sínum kleift að borga í posum með iPhone símanum sínum.
Haukur Bragason er ánægður með Apple Pay því þá þarf hann ekki að ganga um með kort á sér því það er bara í símanum. Þrátt fyrir það að þurfa ekki lengur að hafa kortið á sér þá getur Haukur ekki geymt veskið heima.
Ástæðan fyrir því er sú að maður verður að hafa ökuskírteinið sitt á sér við akstur, annars er hætta á að maður fái sekt.
„Það væri ekkert mál að fletta upp á 2 sekúndum hvort maður sé með bílpróf eða ekki“
Sagði Haukur í Twitter færslu sinni.
Lögreglan svaraði Hauki á Twitter
„Umferðarlögin gefa enga undanþágu. Ökuskírteinaskráin (kerfið) bilar eins og hvað annað og þá dugar bara skírteinið. Svo er þetta líka löggilt skilríki.“
Lögreglan sagði að umferðarlögin gæfu enga undanþágu en þá benti Haukur á að lögreglan hafi nú verið að gefa undanþágur í umferðinni fyrir stuttu.
„Umferðarlögin gefa enga undanþágu nema á nagladekkjum, meinarðu?“
Haukur vísar þannig í undanþágurnar á lögum um nagladekk en málið var mikið í umræðunni í byrjun sumars.
Twitter færsluna hans Hauks má lesa hér fyrir neðan.
Ahhh svo geggjað að vera með Apple Pay og geta bara skilið vesk…nei alveg rétt, @logreglan sektar mann ef maður hefur ekki eitthvað plastspjald meðferðis þó það væri ekkert mál að fletta upp á 2 sekúndum hvort maður sé með bílpróf eða ekki. Fyrirtak.
— Haukur Bragason (@HaukurBragason) June 24, 2019