fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Pawel fór á veitingastað í Kaupmannahöfn: „Það er ótrúlegt hvað eitt lítið „sorrí“ getur gert“

Ritstjórn DV
Föstudaginn 21. júní 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég fór einu sinni á veitingastað í Kaupmannahöfn með nokkrum vinum. Á næsta borði sat hávær hópur heimamanna. Desíbelin jukust með hverjum drukknum bjór og loks stóð einn gestanna upp og rakst nokkuð harkalega í stólbak við okkar borð,“ segir Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi og nýkjörinn forseti borgarstjórnar, í pistli sínum í nýjasta tölublaði Mannlífs í dag.

Í pistlinum skrifar Pawel um nokkuð hversdagslegt atvik sem sýnir þó vel hvaða áhrif orð geta haft á okkur mannfólkið. Í pistli sínum segir Pawel að maðurinn í dæminu hér að ofan hafi sest aftur í stólinn sinn og haldið áfram neyslu sinni. „Frábært, hugsuðum við. Fórum eiginlega að hugsa okkur til hreyfings.“

Svo gerðist nokkuð sem varð til þess að þeim snerist algjörlega hugur. „Nokkrum sekúndum síðar, sneri hann sér við, stóð upp, gekk að okkur og sagði: „Sorrí, afsakið þetta!“ Um leið og hann rétti upp höndina eins og bakvörður sem viðurkennir fyrir dómaranum að það hafi verið hann sem þrumaði boltanum út af.“

Pawel segir að veislan hafi haldið áfram eftir þetta, mennirnir á næsta borði hafi verið jafnháværir og áður, hlátrasköllin jafn fyrirferðarmikil og drykkjan sú sama. „En eitthvað hafði breyst. Þeir virkuðu ekki jafnógnandi og áður. Andrúmsloftið varð allt annað og afslappaðra.“

„Það er ótrúlegt hvað eitt lítið „sorrí“ getur gert. Eitt lítið „fyrirgefðu“ getur leyst upp eitrað andrúmsloft á sama hátt og uppþvottalögur leysir upp fitu. Miðað við galdramátt þessa orðs er í raun ótrúlegt hvað við eigum það til að nota það sparlega. Eins og við gefum eitthvað eftir með því að viðurkenna mistök og biðjast afsökunar. Af hverju? Hefur einhvern tímann verið sagt um nokkurn mann: „Hann var fínn gaur – en sagði fyrirgefðu aðeins of oft?“

Pawel bendir svo á að síðastliðinn þriðjudag hafi borgarstjórn samþykkt nýjar siðareglur borgarfulltrúa. Hann segir að reglurnar samanstandi af ellefu stuttum setningum sem eru einfaldar, jafnvel barnalegar, gæti einhver sagt.

„En uppáhaldsreglan mín á listanum er regla nr. 10: „Við biðjumst afsökunar á mistökum og hlýðum á afsökunarbeiðnir.“ Pawel segir í lokin að það sé gaman að vinna með fólki sem getur haft þetta að leiðarljósi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“