Margrét Friðriksdóttir athafnakona er nú stödd í Ísrael, Landinu helga, og hefur margt drifið á daga hennar þar. Líklega verður þó eitt atvik minnisstæðast en fyrir algjöra tilviljun hitti hún þar Íslending.
Það reyndist ekki hver sem er, heldur Ólafur Jóhannsson, formaður félagsins Zion Vinir Ísraels og stjórnandi sjónvarpsþáttarins Ísrael í dag á sjónvarpsstöðinni Omega. Ólafur telur að þetta hafi ekki verið nein tilviljun.
„Hitti þessa fallegu þekktu konu úr fjölmiðlum t.d. Face-Book. Þetta var sérstök tilviljun! Eftir gott samtal á Ben-Yehuda, skildum við, að þetta var ekki tilviljun. Guð opnar leiðir og hann getur einnig lokað leiðum. Þetta samtal á eftir að hafa gjörning. Þeir sem eiga lifandi trú skilja þetta. Allt okkar líf er í hendi hans sem gaf okkur lífið og trúna,“ skrifar Ólafur á Facebook-síðu sína.
Margrét deilir þessum fregnum jafnframt á Facebook og segir guð hafa leitt þau saman. „Gaman að þvî hvernig Guð virðist leiða kristið fólk saman, hitti þennan meistara hér í Jerúsalem af algerri tilviljun, erum nú að fara fá okkur Ísraelskan shake saman,“ segir Margrét.