fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Fréttir

Kolbrún um mál fjallkonunnar: „Aldís hreif fólk með sér – fyrir utan þá sem nú veina sárt á netinu“

Einar Þór Sigurðsson
Fimmtudaginn 20. júní 2019 07:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Við lifum á tímum þar sem öfgasinnuð öfl sækja stöðugt á með tilheyrandi hræðsluáróðri, útlendingaandúð og kvenfyrirlitningu. Ekki er í boði að gefa eftir í baráttunni við þessi hættulegu öfl sem sækja að opnum lýðræðislegum þjóðfélögum,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir í leiðara Fréttablaðsins í dag.

Þar gerir hún mál Aldísar Amah Hamilton að umtalsefni en eins og kunnugt er var Aldís fjallkonan í ár. Aldís er flugfreyja og leikkona sem útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2016. Eins og DV greindi frá á þriðjudag voru ýmsir sem fundu að því að Aldís væri af blönduðum uppruna. Þetta var meðal annars rætt innan Facebook-hópanna Stjórnmálaspjallið og Málfrelsið, en báðir hópar eru þekktir fyrir íhaldssamar og þjóðernissinnaðar skoðanir meðlima.

Kolbrún hvetur Íslendinga til að vera á varðbergi gagnvart fólki sem flytur þann boðskap.

„Þótt þessi öfl hafi ekki náð sterkri fótfestu í íslensku samfélagi þá bæra þau samt á sér og hætta er á að þau breiði úr sér. Hér finnast svo sannarlega einstaklingar sem vilja ekki sjá fólk sem aðhyllist önnur trúarbrögð en kristni setjast að á Íslandi. Þetta fólk hatast sérstaklega við múslima og vill jafnvel meina þeim að iðka trú sína hér á landi. Hér eru líka einstaklingar sem vilja svipta konur sjálfsákvörðunarrétti til þungunarrofs, en sá réttur er grunnur að kvenfrelsi. Hér finnast afturhaldshópar sem staðfastlega neita því að loftslagsbreytingar séu af mannavöldum og kvarta undan stöðugu væli umhverfisverndarsinna. Baráttan stendur á milli öfgasinnaðra afla og þeirra frjálslyndu. Mikilvægt er að allir sem vilja búa í kærleiksríku samfélagi þar sem jafnrétti og víðsýni eru við völd taki sér stöðu í þessari baráttu gegn öfgaöflunum, en sitji ekki sinnulausir hjá.“

Kolbrún segir að einmitt vegna þessa mikilvægis hafi verið gleðilegt að heyra fjallkonuna flytja ljóð Bubba Morthens, Landið flokkar ekki fólk, á 17. júní. Ljóðið sé einskonar hylling til fjölmenningarsamfélagsins.

„Einhverjir eru enn ekki búnir að ná sér eftir þessi ágætu skilaboð fjallkonunnar. Þessir einstaklingar finna sér athvarf á netinu þar sem þeir geta látið óánægju sína og gremju í ljós. Reyndar var viðbúið að hópur fólks myndi telja að blettur hefði fallið á æru fjallkonunnar þegar hún á þessum einstaka hátíðisdegi mælti orðin: „Við skulum fagna fjölmenningu hér í miðnætursólinni …“

Kolbrún segir að fjallkonan, sem þessum hópi finnst að eigi að vera hæfilega þjóðrembuleg, hafi breyst í frjálslyndan alþjóðasinna sem talar máli samvinnu og víðsýni.

„Hvað skyldi hún gera næst? Það sem gerði þessi skilaboð Bubba Morthens svo öflug var ekki síst sérlega glæsilegur flutningur leikkonunnar sem var í hlutverki fjallkonunnar. Aldís Amah Hamilton fór með ljóðið af innlifun og hreif fólk með sér – fyrir utan þá sem nú veina sárt á netinu. Þar er kvartað yfir því að leikkonan sé ekki alíslensk en faðir hennar er Bandaríkjamaður af afrískum uppruna, sem einhverjum finnst engan veginn gott. Þusað er um að 17. júní sé dagur Íslendinga en ekki fjölmenningar. Sagt er að þessi þáttur athafnarinnar við Austurvöll hafi verið Jóni Sigurðssyni og þeim sem börðust fyrir sjálfstæði þjóðarinnar til háborinnar skammar.“

Kolbrún segir að boðskapur um skilning og samvinnu manna á meðal, hvaðan sem þeir koma, eigi ekki greiðan aðgang að hjörtum Íslendinga.

„Um múrana sem menn skapa með eigin fordómum og tortryggni segir Bubbi í ljóðinu: „rammgerðastir eru þeir sem/reistir eru í höfðum manna“. Hvað er þá til ráða? Svar Bubba er: „Rífum þá niður og göngum inn í víðáttu frelsisins og fögnum lífinu.“ Já, það dugar!,“ segir Kolbrún að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt

Seesaw-deilur Reykjavíkur og Persónuverndar beint í Hæstarétt
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu