fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Þorgrímur með mikilvæg skilaboð og skorar á RÚV: „Ég væri til í að sleppa einu lagi og fá þess í stað spark í rassinn“

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 2. júní 2019 13:30

Þorgrímur Þráinsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þetta bréf er áskorun til Ríkisútvarpsins um að ýta við okkur öllum, fórna einu lagi á dag fyrir snjalla áminningu sem við tökum eftir og tökum til okkar,“ segir Þorgrímur Þráinsson, rithöfundur og fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta, í aðsendri grein í Morgunblaðinu um helgina.

Þar skrifar Þorgrímur um læsi íslenskra ungmenna og varpar fram athyglisverðri tillögu sem hann beinir að RÚV.

„Árangur okkar og velgengni veltur á því hversu mikla trú við höfum á okkur sjálfum – sjálfstrausti. Vissulega spila hæfileikar, gen, líkamsburðir, aðstæður, liðsheild og ýmislegt fleira inn í en trúin á að við getum eitthvað þarf að vera fyrir hendi; sjálfstraustið. Það er byggt upp með margvíslegum hætti en árangur í skóla hefur mest áhrif á sjálfstraust barna. Þar er læsi í forgrunni; að geta lesið, skilið, skrifað og tjáð sig.“

Þorgrímur segir að allir sem vinna með börnum  og ungmennum geri sér grein fyrir þessu. „En við hin lesum um þetta í fjölmiðlum, sjáum niðurstöðu PISA-kannana, hversu margir nemendur þurfa á sérkennslu að halda, glíma við „lesblindu“, brotna sjálfsmynd og svo mætti lengi telja,“ segir Þorgrímur sem telur að læsi sé eitt mikilvægasta lýðheilsumál þjóðarinnar. Við eigum öll að láta okkur það varða.

 „Hér á landi er ríkisfjölmiðill, útvarp og sjónvarp. Á Rás 2 eru eflaust spiluð á milli 200 og 300 lög á hverjum sólarhring, töluvert færri á Rás 1. Ég væri til í að borga hærra útvarpsgjald og sleppa við eitt lag á sólarhring en fá þess í stað spark í rassinn – ábendingu um að ég gæti gert betur sem foreldri, sem uppalandi, sem ábyrgur einstaklingur.“

Þorgrímur segir að ríkisfjölmiðill eigi að sýna ábyrgð í verki þegar eitthvað bjátar á. Boðleiðin sé í raun mjög einföld og af því að við þurfum flest á áminningu að halda.

„Ég er sannfærður um að ég hefði haldið bókum oftar að mínum börnum, lesið meira með þeim eða fyrir þau – ef ég hefði fengið áminningu í lesnum eða leiknum auglýsingum og skjáauglýsingum. Við þurfum viðvarandi og fjölbreytt þjóðarátak til að snúa þróuninni við og Ríkisútvarpið verður að leggja meira af mörkum,“ segir Þorgrímur sem bendir á að vissulega hafi verið þættir í boði fyrir börn. En betur má ef duga skal.

„Þetta bréf er áskorun til Ríkisútvarpsins um að ýta við okkur öllum, fórna einu lagi á dag fyrir snjalla áminningu sem við tökum eftir og tökum til okkar. Börnin eiga það skilið og við þurfum annað slagið að skoða þá forgangsröðun sem er við lýði í samfélaginu og hjá okkur sjálfum. Þetta er svo einfalt, kostar ekki krónu, og mun spara okkur milljarða þegar fram líða stundir – af því það er orsök og afleiðing í þessu samfélagi. En hver veit nema aðrir fjölmiðlar grípi boltann á lofti og sýni frumkvæði.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð

Ástþór hvetur fólk til að passa sig á þessu: Ævintýrið getur fljótt breyst í martröð
Fréttir
Í gær

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra

Lögregla fann 29 dauða nautgripi á bæ á Norðurlandi Vestra
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“

Guðlaugur Þór leiðréttir útbreiddan misskilning: „Þrátt fyr­ir þessa staðreynd flýg­ur sag­an áfram“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“