Lenda þurfti flugvél frá Ethopian Airlines á Keflavíkurflugvelli í fyrradag vegna veikinda farþega um borð.
Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum kemur fram að vélin hafi verið á leið frá Dubai til Baltimore. Um var að ræða kornabarn sem veiktist og var það flutt með sjúkrabifreið á Barnaspítala Hringsins. Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan þess.