fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Fannst meðvitundarlaus í Elliðaárdal

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 12. júní 2019 08:52

Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um meðvitundarlausan mann í Elliðaárdalnum, við stífluna, rétt eftir klukkan sjö í gærkvöldi.

Í dagbók lögreglu kemur fram að sjúkrabíll og lögregla hafi farið á vettvang, en maðurinn reyndist vera ofurölvi eða í vímu. Maðurinn var skoðaður af sjúkraflutningamönnum en var handtekinn eftir það og vistaður í fangaklefa sökum ástands síns.

Lögregla sinnti fleiri verkefnum í gærkvöldi og í nótt. Þannig voru nokkrir ökumenn teknir úr umferð, ýmist vegna gruns um ölvunar- eða fíkniefnaakstur. Þá voru sumir réttindalausir við aksturinn.

Þá handtóku lögreglumenn í Hafnarfirði konu á öðrum tímanum í nótt. Konan, sem var í annarlegu ástandi, stóð við bifreið í innkeyrslu að bílageymslu. Hún var færð í fangaklefa vegna ástands síns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala