Karlmaður á sjötugsaldri lét lífið skammt frá bóndabæ rétt eftir hádegi í gær. Maðurinn var við störf úti á túni, á fjórhjóli, en þegar ættingjar hans vitjuðu hans lá hann á jörðinni við hlið hjólsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra.
Ættingjar höfðu samband við viðbragðsaðila og lögregla, sjúkraflutningamenn og björgunarsveit mættu á staðinn. Endurlífgun var reynd en bar ekki árangur. Læknir úrskurðaði manninn látinn á vettvangi.
Lögregla er nú með málið til rannsóknar, en nafn mannsins verður ekki opinberað að svo stöddu.