Þingmenn Miðflokksins ræddu þriðja orkupakkann á Alþingi í nótt og stendur þingfundur raunar enn yfir nú þegar klukkan er að ganga sjö að morgni.
Þingfundur hófst klukkan 15 í gær og þegar klukkan sló sex í morgun hafði þingfundur því staðið yfir í 15 klukkustundir. Þingfundur sem hófst í fyrradag og lauk í gærmorgun stóð í 19 klukkustundir.
Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, sagðist í gær ekki hafa íhugað þann möguleika að stöðva umræðuna. Fjölmörg önnur mál bíða afgreiðslu áður en þingið fer í sumarfrí.
Uppfært 06.13:
Þingfundi er nú lokið en hann hefst aftur í dag klukkan 15.30.