Fjölmiðlamaðurinn Jón Ársæll Þórðarson segist hafa átt litríka æsku meðal annars vegna þess að hann var 12 ára á togara. Það varð til þess að hann fór með skipsfélögum sínum á vændishús í Þýskalandi. Þetta kemur fram í viðtalsþættinum Mannamál sem sýndur er á Hringbraut.
Jón Ársæll segist þó ekki hafa keypt sér vændi sem gutti. „Svo fékk ég að fara með félögunum á mellubúllurnar í Bremerhaven og Kuchshaven í Þýskalandi. Þar man ég eftir því einhvern tíma að við vorum á búllu og þeir voru allir farnir skipsfélagar mínir, eitthvert upp einhverja stiga, pilsfaldar. Ég sit bara einn með bjórkönnuna þarna. Ég hafði á þeim tíma mikinn áhuga á því að safna, ég safnaði bjórmottum sem maður hefur undir og var kominn með helvíti mikinn stafla af bjórmottum,“ segir Jón Ársæll í viðtalinu
Kvöldi hans var þó ekki lokið. „Ég asnast til að rangla út í nóttina og er bara staddur allt í einu í stórborginni, með bjórmottustaflann, í miðju rauða hverfinu, týndur. Regnvot stræti og myrkur. Hvað á ég að gera? Ég veit ekki í hvaða átt höfnin er einu sinni. Þetta er stærsta borg sem ég hafði komið til,“ segir Jón Ársæll.
Hann dó þó ekki ráðalaus og fór með Faðir vorið. „Nema hvað, ég bregð á það ráð að fara bara með Faðir vorið. Það var það eina sem mér datt í hug. Ég fer bara með þetta eins og mér hafði verið kennt við móðurkné. Viti menn, ég er ekki fyrr búinn með bænina að það kemur fljúgandi maður út úr húsi, það var kastað manni út úr húsi, það er Doddi skipsfélagi minn. „Ha, Nonni, ert þú hérna?“ Ég var bænheyrður, og þetta sannar mátt bænarinnar.“