„Aftur og aftur koma upp mál þar sem þingmenn ganga fram af almenningi, stundum með framgöngu sinni innan þingsala, stundum annars staðar,“ segir Benedikt Jóhannesson, stofnandi Viðreisnar, í pistli í Morgunblaðinu þar sem hann minnir almenning á að sjá ekki bara flísar í augum annarra heldur einnig bjálkann í sínum eigin.
Þingmenn, líkt og aðrir eru mannlegir, en það á til að gleymast. Hvar á hins vegar að draga línuna?
„Sumir segja að við ættum aldrei að gera það sem ekki þyldi að birtast á forsíðum blaðanna.“
Það segir Benedikt að sé slæmur mælikvarði.
„Miklu betra próf er: Væri það í lagi að allir gerðu það sem ég geri? Því það einkennilega er að sumir svara spurningunni neitandi, en halda samt áfram sínu athæfi. Þeir sjá flísarnar, en kippa sér ekki upp við bjálkann.“
Gott dæmi um ofangreint eru stjórnmálamenn og atvinnurekendur sem predika að krónan sé eina myntin sem henti Íslandi, en geyma svo sjálfir mikið magn peninga á erlendum reikningum eða í skattaskjólum.
„Hvers vegna ástundar þú sjálfur af miklum krafti það sem þú fyrirlítur aðra fyrir að gera?“
„Þeir sem finnst ekki í lagi að almenningur nýti sér skattaskjól eiga ekki að fela sína peninga. Þeir sem telja óviðeigandi að þingmenn klæmist slompaðir á almannafæri eiga að fara varlega með áfengi.“