Felix Bergsson segir að sér hafi verið tilkynnt í gærkvöld að það uppátæki Hatara, að veifa palenstínska fánanum í lok stigagjafar á Eurovision í gærkvöld komi til með að hafa afleiðingar. Á þessu stigi veit hann ekki hvaða afleiðingar það verða. Þetta kemur fram á RÚV.
Felix segir jafnframt að sér hafi verið mjög brugðið og uppátækið hafi komið honum í opna skjöldu. Segir hann að þetta hafi verið algjörlega ákvörðun hljómsveitarmeðlima. Orðrétt sagði Felix við RÚV:
„Það svo sem gátu allir vita að þarna eru menn með miklar skoðanir sem vildu koma þeim á framfæri. Ég vona að þetta sé bara stormur í vatnsglasi sem gangi yfir í nótt og á morgun.“