„Þessi sena úr Spaugstofunni frá 1992 eldist annað hvort mjög vel eða mjög illa,“ tístir Halldór Auðar Svansson, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata, á Twitter. Halldór birtir þar myndskeið úr Spaugstofunni frá árinu 1992, þegar þátturinn var líklega á hátindi vinsælda sinna. Í atriðinu er hermt eftir fréttamanni á RÚV á þeim tíma (eða þetta er tilbúinn karakter) og Jóni Baldvini Hannibalssyni. Jón Baldvin var á þessum tíma formaður Alþýðuflokksins og utanríkisráðherra í samstjórn flokksins og Sjálfstæðisflokksins. Forsætisráðherra var Davíð Oddsson.
Í atriðinu er Jón Baldvin vændur um eitthvað misjafnt og hann svarar fyrir sig. Atriðið minnir hins vegar mjög á þá atburði í lífi Jóns Baldvins sem orðið hafa undanfarin misseri þar sem hann hefur verið sakaður um kynferðislega áreitni. Óþægileg tilviljun myndu flestir álykta en aðrir kunna að sjá spádóm í atriðinu sem sjá má hér að neðan.
Þessi sena úr Spaugstofunni frá 1992 eldist annað hvort mjög vel eða mjög illa. pic.twitter.com/mvf94xV2vA
— Halldór Auðar Svansson (@tharfagreinir) 23 April 2019