Stjórn Arion banka hefur hafið undirbúning að ráðningu nýs bankastjóra en Höskuldur Ólafsson bankastjóri lét af störfum fyrir skömmu eftir að hafa gegnt stöðunni frá árinu 2010. Stjórnin hefur falið Stefáni Péturssyni, framkvæmdastjóra fjármálasviðs Arion banka, að gegna starfi bankastjóra um sinn, eða frá 1. maí 2019 og þar til stjórn hefur ráðið bankastjóra til frambúðar.