Lögreglan á Suðurnesjum haldlagði umtalsvert magn af fíkniefnum í húsleit sem gerð var að fenginni heimild í íbúðarhúsnæði síðastliðinn föstudag.
Þetta kemur fram í skeyti sem lögreglan á Suðurnesjum sendi frá sér. Þar segir að um hafi verið að ræða kannabisefni og amfetamín sem voru í neyslupakkningum víðs vegar um íbúðina. Húsráðendur, karlmaður og kona voru handtekin, grunuð um sölu og dreifingu fíkniefna. Í fórum þeirra fundust tugir þúsunda króna sem talið er vera ágóði af sölu fíkniefna.
Þá segir lögregla frá öðrum einstaklingi sem lögregla handtók í gærmorgun. Sá framvísaði sígarettupakka með amfetamíni í. Þá framvísaði ökumaður, sem grunaður var um fíkniefnaakstur kannabisefnum þegar lögreglumenn tóku hann úr umferð.
Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann