„Ég er stjórnmálakona í flokk í minnihluta og ég myndi gera ótrúlegustu hluti svo að Bjarni Ben myndi negla mig.“ Svo hljóðar ein játning í könnun sem vakið hefur talsverða athygli á Twitter.
Fyrir nokkru gerði kona að nafni Elísabet könnun þar sem hún spurði fólk hvort það teldi sig meðal „góða fólksins“ svokallaða og hvort viðkomandi hefði skoðun sem stangast á við það.
„Um 70% af góða fólkinu telur sig hafa amk eina forkastanlega skoðun. Er mjög forvitin um það hvaða óæskilegu skoðanir góða fólkið hefur,“ skrifaði Elísabet þann 20. apríl síðastliðinn.
Viðbrögðin létu ekki á sér standa því nú má lesa tæplega hundrað játningar „góða fólksins“ þar sem það greinir frá eigin skoðun sem fellur ekki beint að pólitískum rétttrúnaði. Líkt og fyrr segir eru þessar játningar nafnlausar en ýmislegt kemur þó fram í þeim. Algengt er að fólk segi fitufordóma eða bíllausan lífsstíl rugl, svo dæmi séu tekin.
Á samfélagsmiðlum er fólki oftar en ekki skipt upp í hópa, þar er stundum talað um Góða fólkið og Vonda fólkið. Góða fólkið er yfirleitt sé hópur sem talar fyrir öllu hinu góða, krefst betra samfélags og gerir það oft með miklum látum. Vonda fólkið er iðulega það fólk sem segir sína skoðun, og er sama hvað hinum háværa hópi „góða fólksins“ finnst.
Svörin eru orðin 99. Hér er hægt að skoða þau:https://t.co/jPpp4N4E5b
Lesist á eigin ábyrgð ?
— Elísabe✝️ (@jtebasile) April 23, 2019