fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Guðmundur segir að gæslumenn sérhagsmuna telji sér og sinni forneskjulegu pólitík ógnað – Vilja ráðskast með aðra og deila út þjóðarauðæfum til fárra

Kristján Kristjánsson
Mánudaginn 15. apríl 2019 07:46

Guðmundur Steingrímsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ekki veit ég hvort það var einhvers konar evrópskur símapakki, fyrsti, annar, þriðji eða fjórði, sem gerði það að verkum að fyrir nokkru uppgötvaði maður á ferðalagi að hægt var að nota símann og netið hvar sem er í Evrópu án þess að borga aukalega fyrir það. Maður talar eins og maður sé heima hjá sér. Ég man að ég hugsaði: Þetta er frábært. Svona á þetta að vera. Hvílík lífsgæði. Þetta ákváðu ríki Evrópu að gera saman. Því meira sem fullvalda ríki vinna saman — eins og í Evrópusambandinu — því betra hafa þegnarnir það.“

Svona hefst pistill Guðmundar Steingrímssonar í Fréttablaðinu í dag en hann ber heitið „Síðasta öskrið“. Í honum fjallar Guðmundur um sérhagsmunaöfl og framapotarar, orkumál, sóun, bættan hag almennings og fleira. Ekki er annað að sjá en Guðmundur skjóti föstum skotum á ýmsa stjórnmálamenn í pistli sínum án þess þó að nafngreina þá. Þar virðast andstæðingar þriðja orkupakkans vera skotmarkið.

„Of lengi hafa almennir borgarar mátt þola það að sérhagsmunaöf l og framapotarar haldi þéttingsföstu kverkataki á þjóðum í nafni einhvers konar ruddafullveldis — sem felur aðallega í sér óskastöðu þeirra til að ráðskast með aðra og deila út þjóðarauðæfum til fárra.“

Segir Guðmundur og bætir við að þeim mun meira sem fullvalda þjóðir vinna saman, þeim mun erfiðara verði fyrir ruddana að athafna sig og ráðskast með þjóðarhag.

„Og þeim mun betra fyrir borgarana. Þetta er þumalputtaregla. Það að geta talað í síma hvar sem er í Evrópu og ferðast frjálst og búið þar sem manni sýnist, það er ekki efst á óskalista þeirra sem vilja ráða þjóðum. Enginn einræðisherra myndi berjast fyrir slíku. Enginn svokallaður „sterkur leiðtogi“. Allt svona er hins vegar á óskalista þeirra sem vilja einlæglega, í samvinnu við aðra, vinna að bættum hag almennings.“

Síðan víkur hann að orkumálunum en umræður og deilur um hinn svokallaða þriðja orkupakka tröllríða nú samfélaginu.

„Á Íslandi er deilt um þriðja orkupakkann í gnauðandi vindi. Mikið ótrúlega er andstaða sumra við það framfaramál einmitt skýrt dæmi um þetta: Löngun sumra til að ráðskast með þjóðarhag án afskipta annarra er óstjórnleg. Hver hefur jú saga íslenskra orkumála verið? Hún er að stórum hluta saga sóunar, yfirgangs og eyðileggingar. Þetta eru „okkar eigin“, verðmætu orkuauðlindir hafa misvitrir stjórnmálamenn á atkvæðaveiðum fullyrt í gegnum tíðina. Svo hafa þeir samviskulaust gefið orkuna — sem er fengin með eyðileggingu á stórkostlegri náttúru — til útlendra stórfyrirtækja í gegnum orkusamninga sem um aldir og ævi munu bera frekju þeirra og skammsýni vitni. Hér í eina tíð var aldrei talað um það að selja orku — hvað þá á markaðsvirði — heldur var iðulega rætt um að „afhenda“ hana. Svo rammt kvað að þessu, að stórfyrirtæki voru fengin hingað ekki bara með gjafverði á orku heldur líka með fjárfestingarsamningum sem undanskilja þessi fyrirtæki frá því að greiða helstu skatta og gjöld sem við öll hin þurfum undantekningalaust að standa skil á. Og þarna f læðir hún út orkan „okkar“, svokölluð, fyrir spottprís án þess að almenningur hafi nokkurn tímann verið spurður um það mál.“

Segir Guðmundur og víkur síðan að gæslumönnum fullveldisins.

„Sumir virðast túlka inntak fullveldisins þannig, að fullveldið snúist fyrst og fremst um það að fáir Íslendingar geti ráðskast áfram með auðæfi landsins. Almennar leikreglur um sölu á orku og hvernig samkeppnisumhverfi skuli hagað — í þágu neytenda og umhverfis — er hindrun á þessari leið.“

Segir hann og bætir við að sem betur fer virðist þessi fornfálega hugsun vera á undanhaldi.

„Líkt og í símamálum og ótal öðrum málum mun samvinna Evrópuríkjanna í orkumálum skila sér í bættum hag almennings. Hið fyndna er hins vegar, að Ísland er ekki einu sinni beinn aðili að þessum markaði, því landið er ekki tengt með orkustreng við Evrópu. Andstaðan við þriðja orkupakkann er þess vegna þeim mun ótrúlegri. Í ljósi sögunnar er ekki hægt að skilja þessa andstöðu öðru vísi en svo, að hún spretti af því að gæslumenn sérhagsmuna — gæslumenn hinna ömurlegu orkusölu- og fjárfestingarsamninga — telji sér og sinni forneskjulegu pólitík ógnað.“

Síðasta öskur frekjunnar

Guðmundur víkur síðan að vörnum gegn einhverju og síðasta öskri frekjunnar

„Ég er orðinn þreyttur á því að hópar fólks telji sig knúna til þess — á grundvelli annarlegra sjónarmiða — að verja mig og aðra gegn auknum lífsgæðum, aukinni fjölbreytni, meiri framþróun, samvinnu, árangri og jafnvel mannúð. Ég sé ákvörðun Kærunefndar útlendingamála um að útlendum nemanda í Hagaskóla og fjölskyldu hennar skuli vísað úr landi þessum sömu augum. Hér á, rétt eins og og í andstöðunni við orkupakkann, að verja okkur hin gegn einhverju.

Hverju? Jú, hér er kenning: Veröldin er öll að þróast í átt að samvinnu. Hið sammannlega er í vexti. Við deilum menningu. Við erum tengd í símanum í lófanum okkar. Þetta er gott. Ekkert vandamál heimsins verður leyst öðruvísi en með samvinnu. Stærsta vá þjóða er ekki sú að missa sjálfstæði sitt, heldur sú að sjálfstæðum þjóðum auðnist ekki að vinna saman. Þetta sjá flestir. Svona er þróunin. Það sem við verðum vitni að— á Íslandi, Bretlandi, Bandaríkjunum — er síðasta öskur frekjunnar. Hún er að missa tökin.”

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni

Ósátt við myndatöku af hnúajárni og „neyslupokum“ en fær hvorki bætur né afslátt af húsaleigunni