„Mér finnst mikilvægt að leggja á það nokkra áherslu þessi dægrin, til þess að róa sálartetrið á óvissutímum, að þó svo flugfélagið WOW hætti rekstri í núverandi mynd eða fari alveg á hausinn, þá þýðir það ekki að náttúruperlur Íslands hverfi í sömu andrá og þar með aðdráttarafl landsins og fegurð þess.“
Þetta segir Guðmundur Steingrímsson, heimspekingur og fyrrverandi þingmaður, í grein sinni í Fréttablaðinu í dag. Þar fjallar Guðmundur meðal annars um vandamál WOW og þann ótrúlega uppgang sem hefur verið í ferðaþjónustu á Íslandi á undanförnum árum. Guðmundur segir að þó illa fari hjá WOW verði Ísland eftir sem áður einn flottasti ferðamannastaður heims. Sannleikurinn sé þó sá að á Íslandi virðist bara vera pláss fyrir eitt stórt flugfélag í einu.
„Gullfoss verður áfram í Hvítá, Strokkur heldur áfram að frussast upp úr jörðinni í Haukadal, Bláa lónið missir ekki lit sinn, Þríhnúkagígur fellur ekki saman, Dyrhólaey hrynur ekki, Dettifoss verður áfram hrikalegur, Látrabjarg áfram ægilegt, Hekla ógnandi og norðurljósin töfrandi. Ísland verður áfram einhver sá magnaðasti áfangastaður sem nokkur ferðamaður getur valið sér að ferðast til,“ segir hann.
Guðmundur segir að honum finnist stundum eins og landinn hafi tekið uppgangi ferðaþjónustunnar á undanförnum árum sem óvæntum lukkupotti. Eins og Ísland hafi dottið alveg óvart í tísku, kannski út af Björk eða Eyjafjallajökli, og kjölfarið hafi túristar streymt til landsins.
„Þetta er að hluta til rétt. Þetta gerðist. Eldgos varð og allt sprakk. Ferðamenn hafa flykkst til landsins síðan, jafnvel í of miklum mæli. Vegna sjómannseðlis og veiðiþels held ég að við Íslendingar, ekki síst út af því að uppganginn bar að með þessu móti, höfum margir tilhneigingu til að líta á ferðamenn eins og makríl. Þeir eru fiskitegund sem allt í einu gerði vart við sig á Íslandsmiðum. Þeir eru afli. Þeir ganga í torfum. Og semsagt: Nú er að verða túristabrestur eins og loðnubrestur. Og WOW er þá útgerðarfélag. Flugvélarnar eru togarar. Félagið hefur mokveitt á undanförnum árum, en nú eru horfur slæmar. Þetta er ekki gott, hvíslar lopapeysuklæddur skipstjóri með sjálfum sér og sötrar gulan Braga.“
Guðmundur segir að honum finnist mikilvægt að minna sig á að þó að þessi samanburður ferðamanna við fisk eigi sér sumpart stoð í raunveruleikanum þá sé þessi líking líka röng og óheilbrigð – á mikilvægan hátt.
„Veruleikinn er fremur þessi, sem varðar okkur mjög: Áhugi fólks, út um allan heim, á ótrúlegri náttúru er ekki eitthvað sem byrjaði í fyrra og hættir á næsta ári. Þörfin til þess að upplifa náttúruna, standa andspænis henni, njóta hennar og reyna sig í henni, er þörf sem mun bara vaxa meðal mannkyns, í takt við vöxtinn á öllu hinu: Vélmennunum, sjálfvirkninni, tölvunum og netinu. Í heimi sem þráir og mun þrá náttúru meira og meira, er Ísland komið á kortið sem einstakt náttúruævintýri. Þótt bakslag komi í hinn ótrúlega mikla uppgang um stundarsakir, dettur Ásbyrgi ekki úr tísku. Né Herðubreið. Né Askja.“
Guðmundur segir að auðvitað sé það glatað að „hressilegt og djarft“ félag eins og WOW hafi ekki getað nýtt sér þann mikla áhuga sem hefur skapast á Íslandi til að byggja upp stöndugan rekstur. Ef það var ekki hægt á þessum miklu uppgangstímum þá sé það líklega aldrei hægt.
„Mér sýnist sagan hafa sagt okkur að Íslendingar geti yfirleitt bara rekið eitt flugfélag, og það með herkjum og ríkisinngripum. Vandræði WOW eru þunglyndisleg áminning um þann dapurlega veruleika.“
En Guðmundur hefur trú á því að þrátt fyrir hrakningar WOW muni útlendingar áfram vilja upplifa Ísland – þó vöxturinn verði ekki 30 prósent á ári, sem betur fer.
„Íslensk ferðaþjónusta mun þurfa að treysta á lögmál framboðs og eftirspurnar þegar kemur að flutningi ferðafólks til landsins. Það lögmál hefur virkað ágætlega á undanförnum árum. Þegar ég var að alast upp flugu frá landinu tvö flugfélög, Icelandair og Arnarflug, og eini túristinn í Skagafirði sumarið 1983 hét David. Nú skipta túristarnir milljónum og flugfélögin tugum.“
Guðmundur bendir að lokum á að náttúran, það sem okkur ber að varðveita og sýna öðrum, er stærri en nokkurt eitt fyrirtæki.
„Það er þó skemmtilegt, og kannski var það hluti af langtímaplani Skúla, ef illa færi, að nafn sköpunarverks hans, sem nú berst í bökkum, mun áfram lifa í alþjóðlegum viðbrögðum þeirra milljóna ferðamanna sem berja munu undur Íslands augum í framtíðinni. Gagnvart Gullfossi, Dettifossi, Jökulsárgljúfrum og Kirkjufelli mun fólk áfram hvísla með sjálfu sér í veðurbarinni lotningu, um aldir alda: WOW.“