Aðkoma ríkisins að björgun WOW air ekki útilokuð. Samkvæmt heimildum DV kæmi bein fjarhagsaðstoð eða ábyrgðir þó ekki til greina, enda er WOW í samkeppnisrekstri og ríkið lítur ekki á það sem sitt hlutverk að bjarga félagi eins og WOW með beinum framlögum. Ráðherrar hafa þegar talað skýrt hvað þetta varðar.
Önnur aðstoð kæmi þó mögulega til greina, en þær viðræður eru í raun ekki farnar af stað. Fundur ráðherra í gær var fyrst og fremst til að glöggva sig á stöðunni og engar nýjar óskir varðandi aðkomu ríkisins hafa verið lagðar fram af hendi forsvarsmanna WOW air.
Forsvarsmenn WOW hafa lagt fram skýrslu um áhrif mögulegs brotthvarfs þess á efnahagsþróun, en skýrslan var unnin af Reykjavík Economics að beiðni flugfélagsins. Þar kemur fram að landsframleiðsla gæti dregist saman um 0.9 til 2.7% á einu ári, fari félagið í þrot. Þá munu gengi krónunnar veikjast, verðbólga aukast og sömuleiðis atvinnuleysi. Heimildamenn DV segja að líta verði til þess að skýrslan sé keypt af WOW air og staðan þurfi alls ekki að vera svo slæm.
Nú er beðið eftir niðurstöðu viðræðna Skúla Mogensen við skuldabréfaeigendur og lánadrottna, en ætla má að gjaldþrot sé það síðasta sem þessir aðilar vilji, enda tapast þá háar fjárhæðir. Staðan er þó mjög þröng og raun „krítísk“ eins og enn viðmælanda DV sagði morgun sem þekkir vel til í þessum geira. Hann benti þó á að ef áætlanir Skúla Morgensen gengju eftir þá yrði flugfélagið tiltölulega skuldlítið og framundan væru þokkalegir mánuðir í farmiðasölu, en almennt er júnímánuður sterkastur yfir sumarið.