Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt. Átta ökumenn voru stöðvaðir, grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og fimm ökumenn voru stöðvaðir í Ártúnsbrekku fyrir að aka of hratt.
Einn ofangreindra ökumanna var handtekinn og færður í fangageymslu, enda hafði jafnframt verið tilkynnt að hann hafi verið að stela verðmætum úr verslun, annar ökumannanna reyndist vera eftirlýstur vegna afplánunar refsingar.
Í hverfi 108 þurfti lögregla að hafa afskipti af manni sem var í annarlegu ástandi á heilbrigðisstofnun. Hann var færður á lögreglustöð til að sofa úr sér, en hann er grunaður um ofbeldi gegn opinberum starfsmanni, eignaspjöll og fleira.
Í miðborginni var tilkynnt um líkamsárás á veitingahúsi. Þolandinn fékk sár á höfuðið en vildi ekki leita sér læknisaðstoðar.
Á Bústaðavegi var ekið á ljósastaur. Engin meiðsl urðu á fólki en bifreiðina þurfti að draga af vettvangi.
Í Hafnarfirði var tilkynnt um innbrot í heimahúsi. Þar hafði gluggi verið spenntur upp og verðmætum stolið.
Maður var handtekinn á veitingastað í Smáralind, grunaður um líkamsrás og hótanir.
Í Breiðholti hafði lögregla afskipti af unglingapartý. Þar hafði 15 ára unglingur haldið partý, gestir voru allir unglingar og um 35 talsins. Áfengisumbúðir voru sjáanlegar og enginn fullorðinn á svæðinu. Lögregla leysti upp partýið og tilkynnti til húsráðenda og barnaverndar.
Ölvaður maður var handtekinn í Árbænum. Hann var gestur í húsnæði þar og hafði í hótunum við húsráðendur. Maðurinn var erlendur, nýkominn til landsins og hafði á engan annan stað að leita. Hann fékk því að eyða nóttinni í fangageymslu lögreglu.
Bíll valt við Gullinbrú, engin meiðsl á fólki en bifreiðina þurfti að flytja af vettvangi af dráttarbifreið.