Nýr Herjólfur er nánast tilbúinn. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni hefur skipasmíðastöðin Crist S.A farið fram á viðbótargreiðslur sem ekki eru í samræmi við samning sem gerður var um smíðina. Vegagerðin hafnaði kröfunni og bauð stöðinni að ljúka greiðslum eftir samningnum, fá skipið afhent en vísa ágreiningi til úrlausnar þriðja aðila.
Enn á eftir að ljúka minniháttar lagfæringum á nýjum Herjólfi sem og prófunum. Samgöngustofa á síðan eftir að ljúka skoðun og staðfesta að gefa megi út haffæruskírteini.
Vegagerðin telur að miða við eðlilega framvindu ætti þessum verkefnum að vera lokið um mánaðamótin.
Samkomulag um lokauppgjör liggur, eins og áður kemur fram, ekki fyrir. Vegagerðin telur þó að þar sem samningar sem gerðir hafi verið bæði um aðalverkið sem og aukaverk hafi allir verið skriflegir þá ætti úrlausn ágreinings ekki að vera flókin. Samningar geri í engu ráð fyrir viðbótargreiðslu og því hafnar Vegagerðin að reiða slíkar greiðslur af hendi.
Vegagerðin hefur leitað til erlendra sérfræðinga til að fá ráðleggingar um hvernig beri að bregðast við kröfum Christ S.A og niðurstaða þeirra var að slíkar viðbótargreiðslur fái ekki stoð í samningi aðila.
„Vegagerðin hefur lagt til að stöðin afhendi ferjuna í lok næstu viku gegn því að Vegagerðin greiði lokagreiðslu í samræmi við samning auk þess að gera upp samþykkt aukaverk, en kröfu stöðvarinnar um viðbótargreiðslu verði vísað til þriðja aðila til úrlausnar í samræmi við samning. Stöðin hefur ekki fallist á þetta en heldur fast við kröfu sína um viðbótargreiðslu umfram samning og samþykkt aukaverk. Gert er ráð fyrir að það skýrist frekar í næstu viku hvort grundvöllur sé fyrir samkomulagi um framhald málsins en þar til það liggur fyrir verður áfram óvissa um hvenær stöðin hyggst afhenda ferjuna.“