Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í gærkvöldi og í nótt. Töluvert var um umferðaróhöpp sem tilkynnt voru til lögreglu, en í gærkvöldi var mjög hált í Reykjavík.
Lögregla þurfti einnig að hafa afskipti af ölvuðu fólki. Aðstoðar var óskað á skemmtistað vegna einstaklings sem lét illa. Á öðrum skemmtistað var lögregla kölluð til vegna gesta sem neituðu að yfirgefa staðinn.
Dyraverðir kölluðu eftir aðstoð lögreglu vegna einstaklings sem lét öllum illum látum og er grunaður um að hafa ráðist á dyraverði og lögreglumenn. Árásarmaðurinn reyndist ekki viðræðuhæfur sökum ölvunar og var látinn sofa úr sér í fangaklefa.
Í Kópavogi var óskað eftir aðstoð lögreglu vegna einstaklings sem stóð í anddyri hús og öskraði. Einnig var tilkynnt um líkamsárás, en ekki er vitað hver var að verki.
Í Breiðholti hafði lögregla afskipti af ölvuðum einstaklings sem var til vandræða fyrir utan skemmtistað. Á endanum þurfti lögregla að handtaka einstaklinginn sökum ástands hans en hann er grunaður um að hafa reynt að kýla dyravörð.