Karlmaður um tvítugt sem var ákærður fyrir alvarlega líkamsárás var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku, þrátt fyrir að hafa játað á sig sakir. Hann má þó ekki um frjálst höfuð strjúka því hann var dæmdur til að sæta ótímabundið öryggisgæslu á viðeigandi stofnun.
Maðurinn var ákærður fyrir að ráðast að tilefnislausu að öðrum manni með miklum ofsa í laugardalnum. Maðurinn sem varð fyrir árásinni var í göngutúr með hundinn sinn um miðjan dag þegar ráðist var á hann. Atlagan beindist aðallega að höfði þolandans og beitti árásarmaðurinn hnefunum, sem og reiðhjóli. Þolandinn slasaðist töluvert og var fluttur af vettvangi með sjúkrabíl. Árásarmaðurinn var handtekinn skömmu síðar.
Eftir árásina var þolandinn meðal annars brotinn á augnatótt, nefbeinsbrotinn og með nokkra 2-4 sentímetra skurði.
Árásarmaðurinn játaði brot sín skýlaust, en dómari taldi þrátt fyrir það ekki fært að sakfella hann, því maðurinn er það veikur á geði að hann er ósakhæfur.
Samkvæmt niðurstöðu geðlæknis hafði árásarmaðurinn búið við erfiðar aðstæður og ástand hans versnað mikið undanfarin ár. Jafnframt taldi hann líklegt að maðurinn glímdi við geðrofssjúkdóm og væri líklega ekki sakhæfur. „Að minnsta kosti þegar hann ráðist að fólki án nokkur tilefnis. Hann upplifi þá skilaboð til sín sem aðrir verði ekki varir.“
Í matsgerð kemur fram að þegar geðlæknir hafi talað við ákærða hafi hann ekkert kannast við árásina: „Hann virðist hafa verið í mjög annarlegu ástandi og hafa ráðist á brotaþola án nokkurs tilefnis en hafa talið brotaþola ávarpa sig og hlæja að sér.“
Læknirinn taldi manninn hættulegan öðrum og að nauðsynlegt væri að vista hann á öryggisgeðdeild. Dómari tók undir þetta og í niðurstöðu segir : „Það er álit dómsins að ákærði hafi, á þeim tíma sem um ræðir í þessu máli, verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum.“
Þolandi fór fram á ríflega 5 milljónir í skaðabætur. Fallist var á að þolandi ætti rétt til bóta og þótti dómara þær hæfilega ákveðnar 900 þúsund krónur.
Ekki er vitað hversu lengi árásarmaðurinn verður vistaður á öryggisgeðdeild, en af niðurstöðu dóms má álykta að það verði ekki fyrr en öðrum stafi ekki lengur hætta af manninum.
„Þykir því nauðsynlegt, vegna réttaröryggis, að ákærði sæti áfram öryggisgæslu á viðeigandi stofnun og gangist undir viðeigandi meðferð vegna veikinda sinna. Meðferðin verður áfram undir eftirliti yfirlæknis öryggis- og réttargeðdeildar og er ákærða skylt að hlíta viðeigandi meðferð, hvort sem hún er í formi viðtala eða lyfjagjafar, þar með talið í sprautuformi, allt eftir nánari ákvörðun yfirlæknis hverju sinni.“