Í Fréttablaðinu í dag má finna sennilega einn stysta pistil sem sést hefur á síðum blaðsins. Aðsenda greinin er eftir Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, og er einungis ein setning auk fyrirsagnar.
Fyrirsögnin er „Það eru ekki allir sveppir hollir“ og pistilinn hljóðar svo: „Samfélagið stendur í ljósum logum og framlag forsætisráðherra til þess að slökkva elda er að googla hamingjuna?“ Lengri er ekki pistillinn.
Þar vísar Kári til orða Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra á málþingi landlæknis á dögunum. Hún sagðist hafa gúgglað orðið „hamingja“. „Það áhugaverðasta sem kom upp úr því var uppskrift að léttlopapeysu, opinni, sem bar heitið Hamingja. Hún var röndótt í mjög mörgum fallegum björtum litum. Svo ég hugsaði: Ef hamingjan er léttlopapeysa þá endurspeglar þessi peysa fjölbreytileika og birtu,“ hafði Morgunblaðið eftir henni.
Pistilinn hefur nú þegar vakið nokkra athygli á Twitter en þar skrifar Eva Dögg nokkur til að mynda: „Oft hef ég haft gaman af greinum Kára Stef. En greinin í dag ber þess ummerki að annaðhvort er maðurinn ljósárum á undan öllum í gáfum eða eitthvað er byrjað að gefa sig.“
Eini maðurinn sem kemst upp með að skrifa eina setningu og fyrirsögn og kalla það ,,innsenda grein"
— Ingi Vífill (@tilstjarnanna) March 22, 2019