Í miðborginni var sími hrifsaður af manni á Laugavegi og komst þjófurinn undan á hlaupum. Harður árekstur varð í miðborginni. Einn var fluttur á slysadeild með sjúkrabifreið en meiðslin eru talin minniháttar. Flytja varð aðra bifreiðina af vettvangi með kranabifreið.
Í Garðabæ var bifreið ekið á ljósastaur en engin slys urðu á fólki.
Einn ökumaður var handtekinn í nótt í Grafarvogi en hann er grunaður um að hafa verið undir áhrifum fíkniefna.