Samkvæmt upplýsingum af Facebook síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafa tilkynningar borist um óprúttna aðila sem ganga á milli verslana og biðja starfsfólk að skipta peningaseðlum.
Þeir fara einkum í matvöruverslanir. Aðilarnir hafa jafnvel reitt fram tíu þúsund krónu seðla, beðið um að fá skipt í minni seðla en beita svo blekkingum til að fá hærri upphæð í hendur en þeir afhentu starfsfólki.
Lögreglan hvetur starfsfólk í verslunum til að vera á varðbergi og hafa samband við lögreglu í síma 444-1000 til að koma á framfæri upplýsingum um þetta mál.
Einnig er hægt að senda tölvupóst á adalsteinna@lrh.is eða senda lögreglunni skilaboð á Facebook.