„Burt með þetta ógeðslega vaxtaokur óverðtryggða lána,“ segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, á Facebook-síðu sinni þar sem hún deilir samanburði Vilhjálms Birgissonar, verkalýðsleiðtoga, á lánskjörum milli nokkurra landa.
„Íslensk heimili þurfa að greiða tæpum 110 þúsundum króna meira í vaxtakostnað í hverjum mánuði en finnsk heimili,“ sagði Vilhjálmur á Facebook-síðu sinni á liðnu ári þar sem hann talar um „vaxtaofbeldi“ á Íslandi. Vilhjálmur hefur verið áberandi í baráttu sinni fyrir lægri vöxtum og afnámi verðtryggingar, svo dæmi séu tekin.
Inga Sæland segir að Íslendingar séu kúgaðir inn í kerfi verðtryggingarinnar, hvort sem þeim líki betur eða verr. „Kerfi sem við ráðum ekkert við og vitum aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Lánardrottnar halda sínu, sama hvað.“
Hún minnir á að ríkissjóður verður í ár af sjö milljarða króna tekjum út af lækkun bankaskattsins sem Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, setti í forgang „umfram nánast allt það sem skiptir hvað mestu máli fyrir fólkið í landinu“.
„Belti, axlabönd og björgunarbátur er öryggisventill fjármálaelítunnar á meðan almenningi blæðir út. Þetta er gegnumspillt og ógeðslega rotið svo ekki sé fastar að orði kveðið.“
Fréttatíminn birti líka sláandi mynd þar sem vextir á Íslandi eru bornir saman við vexti í Færeyjum.