Sjöunda mislingasmitið hér á landi greindist í gær en um er að ræða 23 einstakling í Reykjavík. Þetta kemur fram í frétt á vef Landlæknis.
Í fréttinni kemur fram að viðkomandi hafi verið bólusettur tólf ára gamall en hafði nýlega verið í umgengni við smitandi einstakling. „Um 10 dögum síðar fékk hann vægan hita í 1–2 daga með mislingalíkum útbrotum. Niðurstaða rannsóknar þann 19. mars var vægt jákvæð fyrir mislingum.“
Í frétt landlæknis segir enn fremur:
„Að öllum líkindum er hér um að ræða væga mislinga („modified measles“) sem er vel lýst hjá bólusettum einstaklingum. Engin hætta er á alvarlegum veikindum í slíkum tilfellum og smithætta til annarra lítil. Ekki er þörf á sóttkví annarra sem umgengist hafa þann veika af þessu tilefni en hinn veiki verður í einangrun í 4 daga eftir að útbrot byrjuðu.“
Þá segir að undanfarið hafi einnig borið á því að bólusettir einstaklingar hafi fengið útbrot skömmu eftir bólusetninguna og greinst jákvæðir í rannsóknum fyrir mislingum. Að því er segir í fréttinni eru þessi einkenni eðlileg eftir bólusetninguna og valda ekki smiti til annarra. Í flestum slíkum tilfellum er ekki ástæða til sýnatöku en sýnataka er alltaf háð mati læknis.
„Þetta nýjasta tilfelli breytir ekki fyrri viðbrögðum við mislingafaraldrinum.“