Skömmu fyrir miðnætti var ofurölvi karlmaður handtekinn í miðborginni. Hann gat ekki skýrt frá nafni sínu og var óhæfur til að vera úti. Hann var því vistaður í fangageymslu.
Einn ökumaður var handtekinn í Kópavogi í nótt en hann er grunaður um ölvun við akstur og akstur án ökuréttinda.