Kveikt var í hjóli fyrir framan Miðberg í Gerðubergi, Breiðholti. Að sögn sjónarvotts lagði mikinn reyk frá. Slökkviliðið er mætt til að slökkva bálið.
„Það er búið að kveikja í einhverju beint fyrir framan Miðberg í Gerðubergi í Breiðholti og leggur þvílíkt þykkur svartur mökkur og eitthvað sem sprakk,“ sagði sjónarvottur sem taldi að um vespu væri að ræða en þorði þó ekki að fullyrða það.
„Það sprakk eitthvað þarna áðan og það er svakaleg lykt. Þetta er bara beint fyrir framan Miðberg. Þegar ég kom komu einhverjir tveir unglingsstrákar hlaupandi og skýldu sér bak við bíl.“