Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum hefur til rannsóknar fíkniefnamál sem upp kom fyrr í mánuðinum þegar íslenskur karlmaður á sextugsaldri reyndi að smygla rúmlega einum og hálfum lítra af amfetamínvökva inn í landið.
Í tilkynningu sem lögreglan á Suðurnesjum sendi frá sér vegna málsins kemur fram að maðurinn hafi verið að koma frá Barcelona á Spáni þegar tollverðir stöðvuðu hann í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Í farangri hans voru tvær 780 millilítra rauðvínsflöskur sem reyndust innihalda amfetamínvökvann.
Maðurinn sætir nú gæsluvarðhaldi og miðar rannsókn málsins vel.
Ekki er unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu, að sögn lögreglu.