Snemma í gærkvöldi var tilkynnt um nakinn mann í almennri aðstöðu við Reykjavíkurflugvöll.
Fram kemur í dagbók lögreglu að þarna var um að ræða erlendan heimilislausan mann sem hefur vanið komur sínar þarna. Notar hann þá meðal annars almennings salernið til að þrífa sig. Manninum var vísað burt.
Um svipað leyti var tilkynnt um þjófnað úr verslun í hverfi 108. Þjófurinn var handtekinn og vistaður í fangageymslu meðan unnið var í máli hans en illa gekk að fá túlk svo hægt væri að ræða við geranda. Hann var látinn laus að lokinni skýrslutöku.
Um hálfellefu leytið í gærkvöldi var tilkynnt um par í átökum við veitingahús í Kópavogi 200. Parið var ofurölvi og neitaði að segja til nafns og fór ekki að fyrirmælum lögreglu.
Þegar lögreglumenn voru að handtaka manninn þá réðst konan að þeim og tálmaði störf þeirra. Voru þau bæði handtekinn og vistuð sökum ástands í fangageymslu lögreglu.
Rétt fyrir miðnætti var tilkynnt um slys á heimili í hverfi 113. Samkvæmi var í gangi og var kona að nota hníf til að opna flösku. Hnífurinn rann til í hendi konunar og var mikil blæðing. Áhöfn sjúkrabifreiðar kom á vettvang bjó um sárið og flutti síðan konuna til aðhlynningar á slysadeild.
Um hálf þrjú leytið í nótt var maður í annarlegu ástandi handtekinn við veitingahús í miðborginni. Maðurinn hafði ráðist á dyraverði og var í tökum er lögregla kom. Maðurinn var vistaður sökum ástands í fangageymslu lögreglu.