Óskað var eftir aðstoð sérsveitarinnar í Reykjanesbæ á fimmta tímanum í dag vegna líkamsárásar.
Í samtali við mbl.is segir lögreglan að um fjölskylduharmleik hafi verið að ræða en árásin átti sér stað í heimahúsi.
Einn var handtekinn en önnur manneskja flutt á sjúkrahús en hún er ekki alvarlega slösuð.