„Ég er svolítið stressuð núna. Ég var eiginlega vona að hann hefði tæmt allt úr tölvunni. Ég er svo hrædd um að það séu einhver bréf hérna,“ segir Erla Hlynsdóttir blaðakona, þar sem hún er stödd á heimili föður síns heitins, Hlyns Þórs Magnússonar. Erla er ein af viðmælendum Lóu Pindar í 3. þættinum af Viltu í alvöru deyja sem sýndur verður á Stöð 2 í kvöld.
Þáttaröðin Viltu í alvöru deyja hefur vakið mikla athygli en þar ræðir Lóa Pind við aðstandendur einstaklinga sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Faðir Erlu Hlynsdóttur, Hlynur Þór Magnússon svipti sig lífi jólin 2017 en ekki er vitað hvort hann hafi látist á aðfangadag eða jóladag. Erla var einkadóttir hans en fram kemur í þættinum að samskipti þeirra feðgina hafi verið snúin.
Í þættinum er fylgst með þegar Erla rýfur lögregluinnsiglið að íbúðinni þar sem faðir hennar bjó. Erla hafði aldrei áður stigið þar inn fæti og í íbúðinni mátti ennþá finna ummerki um sjálfsvíg föður hennar.
„Þetta er bara hræðilegt,“ segir Erla meðal annars þar sem hún fer yfir muni föður síns heitins og skoðar sig um í íbúðinni.
Hún sendi föður sínum reglulega myndir af dóttur sinni, henni Lovísu. „Um tíma var það þannig að ef það leið vika og hann fékk ekki mynd þá gerði hann athugasemdir.“
Líkt og áður segir var samband Erlu og föður hennar snúið og framkoma hans var afar öfgafull. Samskiptin á milli þeirra voru annað hvort afar góð eða þá afar erfið. Seinustu árin voru þau erfið og fékk Erla orðljótar sendingar frá föður sínum. Þannig hljómaði seinasta setningin til Erlu frá föður hennar: „Ég geri Erlu Hlynsdóttur og hennar hyski allt og alls staðar til bölvunar sem í mínu valdi stendur.“
Ef þú ert að hugleiða sjálfsvíg:
Hringdu í Hjálparsíma Rauða krossins: 1717 – opið allan sólarhringinn
Talaðu við netspjall Rauða krossins á raudikrossinn.is
Eða pantaðu tíma hjá Pieta samtökunum: pieta.is