fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Jakob Frímann mærir Jón Baldvin: „Hjálp. Ég gubbaði á skrifborðið mitt“

Hjálmar Friðriksson
Fimmtudaginn 21. febrúar 2019 10:10

Stuðmaður Jakob Frímann Magnússon.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon virðist einn fárra sem óskar Jóni Baldvini Hannibalssyni til hamingju með áttræðisafmæli hans í dag. Jakob skrifar grein í Morgunblaðið í dag þar sem hann mærir mikið Jón Baldvin. Hann hefur verið sakaður af tugum kvenna um kynferðislega áreitni og kynferðislegt ofbeldi. Hefur grein Jakobs verið gagnrýnd á samfélagsmiðlum. Jakob segir:

„Í dag er áttræður vinur minn og samferðamaður um langa hríð, Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi sjómaður, kennari, skólameistari, ritstjóri, formaður Alþýðuflokksins, fjármálaráðherra, utanríkisráðherra og sendiherra Íslands í Washington og Helsinki. Fáa menn veit ég jafn leiftrandi greinda, litríka og skemmtilega. Sannarlega öngvan er lagt hefur jafngjörva hönd á að skapa forsendur hins auðuga íslenska velferðarsamfélags sem aldrei hefur staðið í jafnmiklum blóma og einmitt nú. Þökk sé ötulli og einbeittri baráttu hans fyrir þeim kostakjörum sem inngangan í EES, Evrópska efnahagssvæðið, færði okkur um miðjan tíunda áratug síðustu aldar,“ skrifar Jakob Frímann.

Hann rifjar svo upp það þegar Eystrasaltslöndin slitu sig frá Sovétríkjunum. „Jóns Baldvins verður lengi minnst á Íslandi fyrir það pólitíska þrekvirki. Að sama skapi er hans hlýlega minnst í öðrum löndum sem hins djarfhuga stjórnmálamanns er fyrstur steig fram til atfylgis baltnesku þjóðunum í tvísýnni baráttu þeirra fyrir frelsi og langþráðu, endurheimtu sjálfstæði. Undir ógnandi hótunum Rússa hvikaði utanríkisráðherrann Jón Baldvin hvergi og bauð hinni vígreifu gömlu kommúnistaþjóð birginn án þess að blikna. Með einstöku íslensku orðfæri mælir hann jafnan óhræddur og tæpitungulaust. Eftir hann liggja ótal snjallar ritgerðir, greinar og bækur. Að minnsta kosti tveggja nýrra ritverka eftir hann er að vænta á þessu ári,“ skrifar Jakob Frímann.

Hann kemur svo lítillega inn á ásakanir fjölda kvenna á hendur Jóns Baldvins. „Það hefur ósjaldan gustað um Jón Baldvin Hannibalsson og sennilega aldrei sem nú. Í eðli sínu er Jón þó friðarins maður. Enginn þó FriðJón. Þótt ekki sé vitað með vissu hvar okkar maður kýs að halda til á stórafmælinu, mætti vel ímynda sér hann ganga íhugulan á vit Íslandsstrætis í Litháen eða orna sér að kveldi við Íslandstorg í Tallinn þar sem þegnarnir kunna vel að meta dýrmætt framlag hans til sjálfstæðisbaráttu Eistlands, Lettlands og Litháen. Ég óska afmælisbarninu – og fjölskyldu þess allri – friðar og velfarnaðar á merkum tímamótum,“ skrifar Jakob Frímann.

Grein Jakobs hefur verið gagnrýnd á samfélagsmiðlum. Hildur Lilliendahl deilir skjáskoti af greininni á Twitter og segjast nokkrir í athugasemdum að þeim langi að gubba. Hildur Lilliendahl segir: „Hjálp. Ég gubbaði á skrifborðið mitt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu