fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Samtök ferðaþjónustunnar fordæma svindlið hjá ProCar: Varpar skugga á allar bílaleigur á landinu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 13. febrúar 2019 17:56

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samtök ferðaþjónustunnar hafa brugðist við tíðindum af framferði bílaleigunnar ProCar þar sem tíðkaðist um skeið að færa niður kílómetrastöðu bíla áður en þeir voru seldir og blekkja þannig kaupendur. Samtök ferðaþjónustunnar segja að þetta varpi skugga á starfsemi allra bílaleiga á landinu og vilja að gerð verði eftirlitsúttekt á ástandinu til að eyða óvissu. Fréttatilkynning Samtaka ferðaþjónustunnar um málið er eftirfarandi:

 

Samtök ferðaþjónustunnar fara fram á eftirlitsúttekt til að eyða óvissu um sölu notaðra bílaleigubíla.

Í fréttaskýringarþættinum Kveik sem sjónvarpað var á RÚV í gærkvöld kom fram að bílaleigan ProCar ehf. hafi átt við kílómetrastöðu á bílaleigubílum áður en þeir voru seldir á almennum markaði. Forsvarsmenn umræddrar bílaleigu hafa þegar gengist við brotunum í yfirlýsingu. Er ljóst að um víðtæk brot er að ræða sem snúa að fjölda bíla um nokkurra ára bil.

Samtök ferðaþjónustunnar fordæma umrædd brot og árétta að auk þess að blekkja og brjóta alvarlega á rétti einstaklinga og lögaðila sem í góðri trú hafa keypt notaða bíla af viðkomandi bílaleigu, skekkir slík brotastarfsemi samkeppnisstöðu bílaleiga í landinu.

SAF árétta að innan raða samtakanna starfar fjöldi bílaleiga sem stunda ábyrgan og heiðarlegan atvinnurekstur. Ólíðandi er að brot eins fyrirtækis varpi óréttmætum skugga á allar bílaleigur í landinu. Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir fagmennsku og gæði og líða ekki brot sem þessi.

Umrædd bílaleiga er aðili að SAF. Í ljósi alvarleika málsins hefur stjórn SAF ákveðið einróma að vísa fyrirtækinu úr samtökunum á grundvelli 5. gr. laga SAF þar sem segir að Stjórn SAF geti vikið félaga úr samtökunum „vegna alvarlegs brots gegn lögum samtakanna, landslögum eða venjum er varða góða viðskiptahætti.“

Ennfremur leggja SAF og fulltrúar bílaleiga innan samtakanna mikla áherslu á að stjórnvöld og eftirlitsaðilar hlutist til um að gerð verði eftirlitsúttekt hjá öllum bílaleigum sem hafa starfsleyfi, með tilviljanakenndu úrtaki innan hverrar bílaleigu. Þar verði kannað hvort samningar um sölu á bílum í eigu bílaleiga séu í samræmi við kílómetratalningu í leigusamningum. Slíkt eftirlit þarf að eiga sér stað eins fljótt og verða má með það að markmiði að eyða allri óvissu sem kann að ríkja um sölu á notuðum bílaleigubílum.

SAF munu hér eftir sem hingað til vinna að því að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja, fagmennsku og gæði í ferðaþjónustu á Íslandi.

Reykjavík, 13. febrúar 2019

Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla

Össur segir Jóni Gnarr að hætta að væla
Fréttir
Í gær

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu

Dönsk stjórnvöld búa sig undir stríð – Hyggjast þvinga fólk til að gegna herþjónustu
Fréttir
Í gær

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis

Fullt hús á netöryggisráðstefnu Syndis
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk