fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

Sigríður ósátt við Jón Ársæl – Kallar hann Júdas: „Já mamma þetta voru nornaveiðar“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 12. febrúar 2019 13:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigríður Bryndís Baldvinsdóttir, sem er yfirlýstur þjóðernissinni og segist ekki kippa sér við að vera kölluð nasisti, segir farir sínar ekki sléttar af Jóni Ársæli Þórðarsyni. Hún líkir honum við svikula gyðinginn Júdas Ískaríot á Facebook-síðu sinni. Þess má geta að Júdas og meintar gjörðir hans hafa í gegnum aldirnar ítrekað verið notaðar sem rökstuðningur fyrir gyðingahatri.

Svo virðist sem hún setji einna helst út á að „tilfinningaklám“ vegna Helfararinnar hafi verið sýnt í þætti Jóns Ársæls, Paradísarheimt, á sunnudaginn. „Nú er ég ekki kristin og ég er illa innrætt með afbrigðum. Ég gerði þessa mynd sem þakkir fyrir að bæta við tilfinningaklám myndum til dæmis úr seinni heimsstyrjöldinni og fleira inn í viðtalið við mig,“ segir Sigríður.

Hún sakar Jón Ársæl um hafa platað sig í viðtalið á fölskum forsendum. „Viðtal sem að Jón Ársæll sagði við mig að ætti að vera um nornir. Leiðinlegt að svekkja ykkur á RÚV, en ég fæddist 1971 og „Helförin“ var ekki á mínum vegum. Þó ég sé með skoðanir og tattú,“ segir Sigríður en í þættinum kom fram að hún er með tákn fyrir upphafsstafi Adolfs Hitlers flúrað á hálsinn á sér, talan 18 táknar þar upphafsstafina A og H.

Móðir hennar skrifar athugasemd við færsluna og spyr hana hvort þetta hafi verið nornaveiðar. „Já Mamma þetta voru Nornaveiðar. Þeir sem það reyna ættu að vita að Nornir veiðast ekki svo glatt og það gæti bitið þá hressilega til baka sem það reyna,“ svarar Sigríður Bryndís.

Með færslu sinni birtir Sigríður Bryndís mynd sem sjá má hér fyrir neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni

Jólaskotárásin á Hvaleyrarholti – Faðirinn skýldi 9 ára dóttur sinni fyrir skothríðinni
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Fréttir
Í gær

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“
Fréttir
Í gær

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“

Ásdís Rán komin með lágmarksfjölda meðmælenda – „Þetta var auðveldara fyrir hina“