fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Land hinna feitu starfslokasamninga

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 8. desember 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að starfslokasamningur Haraldar Johannessen ríkislögreglustjóra hafi valdið miklum usla á meðal almennings. Haraldur lætur af störfum í byrjun næsta árs og verður á óskertum launum og starfskjörum sem hann hefur haft, til 30. júní 2021. Í kjölfar þess verður hann á biðlaunum til loka sama árs. Þetta kom fram í starfslokasamningi Haraldar. Fær Haraldur um fjörutíu milljónir í sinn hlut, eða 126 föld lágmarkslaun í landinu.

Að gefnu tilefni skoðum við fleiri starfslokasamninga sem hafa sett samfélagið á hliðina og létt fjárhirslur almennings heilmikið.

 

 

Sandur af seðlum

Seðlabanki Íslands greiddi Ingibjörgu Guðbjartsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits hjá bankanum, rúmlega 18 milljónir króna við starfslok hennar hjá bankanum árið 2016.

Heildarupphæð: 18.000.000 kr.

Það eru …

75.000 lítrar af bensíni

120 ísskápar

45.000 ísar með dýfu

Kirkjumálasjóður gefur

Oddur Einarsson, framkvæmdastjóri kirkjuráðs, nýtur góðs af sínum starfslokum. Oddi var sagt upp störfum í byrjun október og hlýtur hvorki meira né minna 20 milljónir frá Kirkjumálasjóði næstu 19 mánuði. Oddur hafði starfað hjá kirkjuráði í þrjú ár.

Heildarupphæð: 20.000.000 kr.

Það eru …

57.000 pokar af lakkrísreimum

1 sumarbústaður á Suðurlandi

1.200 flugferðir til Kaupmannahafnar, fram og til baka

Skyldi sáttur við bankann

Steinþór Pálsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, lét af störfum og hlaut rúmar 25 milljónir króna eftir starfslokin frá bankanum.

Heildarupphæð: 25.000.000 kr.

Það eru …

… tæplega 140.000 lítrar af mjólk

… tæplega 15.000 bíómiðar

9 nýjar Yaris-bifreiðar

37 milljónir í laun og hlunnindi

Auðun Freyr Ingvarsson, sem sagði af sér sem framkvæmdastjóri Félagsbústaða í október í fyrra, í kjölfar 330 milljóna króna framúrkeyrslu vegna framkvæmda við Írabakka, fékk greiddar alls 36,990 milljónir í laun og hlunnindi fyrir árið 2018.

Heildarupphæð: 36.990.000 kr.

Það eru …

… rúmlega 13.000 pítsur á veitingastað

… tæplega 80.000 strætómiðar fyrir fullorðna

… rúmlega 1 raðhús í Þorlákshöfn

Sæll bankastjóri

Hösk­uld­ur H. Ólafs­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Ari­on banka, fékk 150 millj­ón­ir króna við starfs­lok sín hjá bank­an­um, að því er fram kem­ur í reikn­ings­skil­um bank­ans fyr­ir ann­an árs­fjórðung 2019.

Heildarupphæð: 150.000.000 kr.

Það eru …

… næstum því 500 föld lágmarkslaun

… nóg til að kaupa rúmlega 300.000 tilboð af pylsu og kók

20 Teslur Model 3

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi