Alls bárust 17 umsóknir um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu lýðheilsu og forvarna í heilbrigðisráðuneytinu en umsóknarfrestur rann út 29. nóvember síðastliðinn. Á vef heilbrigðisráðuneytisins eru nöfn umsækjenda birt.
Þar segir að sérstök hæfnisnefnd, skipuð þremur einstaklingum, muni meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra. Nefndin starfar samkvæmt reglum nr. 393/2012, um ráðgefandi nefndir er meta hæfni umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands.
Umsækjendur eru eftirtaldir:
- Ari Matthíasson, heilsuhagfræðingur
- Arna Hrönn Aradóttir, verkefnastjóri
- Ásthildur Knútsdóttir, settur skrifstofustjóri
- Berglind Anna Aradóttir, forstöðumaður
- Dagmar Sigurðardóttir, lögfræðingur
- Elsa Kristín Sigurðardóttir, sérfræðingur
- Finnur Þ. Gunnþórsson, markþjálfi
- Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir, nemi
- Helga Pálmadóttir, aðstoðardeildarstjóri
- Helga María Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur
- Helga Sif Friðjónsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri
- Inga Birgisdóttir, stundakennari
- Ingunn Björnsdóttir, dósent
- Jóhann Kristjánsson, rekstrarstjóri
- Lúðvík Þorgeirsson, framkvæmdastjóri
- Sigríður Kristín Hrafnkelsdóttir, verkefnastjóri
- Sjöfn Kjartansdóttir, markaðsstjóri