Frétt undir fyrirsögninni „Notaði Jakob Helgi þekkt merki nýnasista? – Reyndi að verja ferð SUS til Samherja“ birtist á vef DV þann 27. nóvemer síðastliðinn. Í fréttinni var Jakob Helgi Bjarnason, framkvæmdastjóri Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS), bendlaður við nýnasisma. Þó ekki væri fullyrt að Jakob væri nýnasisti var það sterklega gefið til kynna og þar af leiðandi vegið að æru Jakobs. Jakob hins vegar tengist nýnasistum ekki neitt og hefur aldrei gert.
DV vill biðja Jakob innilegrar afsökunar á umræddri frétt, sem var tekin úr birtingu seinna sama dag, og þeim óþægindum sem hún hefur valdið honum. Mannleg mistök urðu til þess að fréttin fór í birtingu og lifði í nokkra stund inni á vefnum áður en hún var tekin úr birtingu og henni eytt.