fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Annáll – nóvember – Samherjaskjölin skekja samfélagið – Þessi ákvörðun stjórnar RÚV er í skásta falli heimskuleg”

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 31. desember 2019 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svo kom nóvember og þá vantaði ekki fréttirnar eins og sést í þessari upprifjun DV.

Sjá einnig: Annáll janúar / Annáll febrúar / Annáll mars / Annáll apríl / Annáll maí / Annáll júní / Annáll júlí / Annáll ágúst  / Annáll september / Annáll október

Samherjaskjölin

Mál málanna í nóvember, og raunar enn, eru Samherjaskjölin sem skóku þjóðina. Uppljóstranir Kveiks og Stundarinnar hreyfðu við landanum í nóvembermánuði þegar uppljóstrarinn Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi starfsmaður Samherja, steig fram og sakaði Samherjamenn um stórtækar mútugreiðslur og spillingu í Namibíu til að komast yfir dýrmætan kvóta. Wikileaks birti tugi þúsunda gagna þessu til staðfestingar og þjóðfélagið fór á hliðina. Þorsteinn Már Baldvinsson steig til hliðar sem forstjóri Samherja og Jóhannes opnaði sig um líflátshótanir í sinn garð og ófrægingarherferð. Málið vakti heimsathygli og er ekki aðeins til rannsóknar hér á landi heldur víða um heim.

Fyrirsæta og fjársvik

Önnur stórfrétt í nóvember var um fyrirsætuna Ásdísi Rán Gunnarsdóttur, Ísdrottninguna sjálfa. Hún er flækt í eitt stærsta fjársvikamál síðari ára sem teygir sig til 175 landa. Samkvæmt bandarísku alríkislögreglunni, FBI, náði besta vinkona Ásdísar Ránar, búlgarska athafnakonan Ruja Ignatova, að svíkja út tæpa þúsund milljarða íslenskra króna á heimsvísu áður en hún hvarf sporlaust í október árið 2017. Ekkert hefur spurst til hennar síðan þá og hafa lögregluyfirvöld víða um lönd reynt að hafa uppi á henni, líkt og vinkona hennar Ásdís Rán en hún er andlit fyrirtækisins sem talið er að standi á bak við svikamylluna. DV sagði fyrst frá málinu sem leitaði síðar í alla helstu fréttamiðla Íslands.

Ásdís og Ruja. Ljósmynd/Inlife.bg.

Umdeild Erna

Borgarafundur RÚV um loftslagsmál vakti mikla athygli en það má með sanni segja að Erna Ýr Öldudóttir hafi stolið senunni. Erna Ýr er það sem kallað hefur verið afneitunarsinni og hélt því fram í þættinum að þeir sem héldu loftslagsvánni hvað mest á lofti ættu fjárhagslegra hagsmuna að gæta. Erna Ýr var bæði gagnrýnd og ausin lofi eftir þáttinn.

Erna Ýr Öldudóttir.

Leiðinlegi flokkurinn

Jón Gnarr boðaði nýtt stjórnmálaafl. Meðal stefnumála voru hærri skattar, boð og bönn. Ekki er ljóst hvort um grín eða alvöru er að ræða en aflið heitir Leiðinlegi flokkurinn.

Jón Gnarr.

Mannvonskan

Það mál sem vakti hvað mesta reiði í samfélaginu, fyrir utan Samherjamálið, var þegar að kasóléttri konu frá Albaníu var vísað úr landi. Málið hefur verið harðlega gagnrýnt úr ýmsum áttum og margir hafa kallað á að útlendingalög verði endurskoðuð.

Albanska konan.

Trefill í brennidepli

Svo var það Katrín Jakobsdóttir sem mætti með Liverpool-trefil í sal Alþingishússins sama dag og stórleikur Liverpool og Napoli fór fram í Meistaradeild Evrópu. Ekki voru allir á eitt sáttir við þetta uppátæki en hún útskýrði mál sitt stuttu síðar: „Mér þykir mjög vænt um þennan trefil, eiginmaðurinn minn gaf mér hann.“

Katrín Jakobsdóttir með trefilinn.

Hart mætir hörðu

Aktífistinn Þórdís Elva Þorvaldsdóttir og leikkonan Steinunn Ólína Þorvarðardóttir háðu mikla ritdeilu vegna úrskurðar í máli Atla Rafns gegn Borgarleikhúsinu. Gengu hnúturnar á milli þeirra eins og enginn væri morgundagurinn þótt engin niðurstaða fengist í málið.

Steinunn og Þórdís.

Spillingarstríð

Upp úr sauð í Silfrinu þegar Atli Þór Fanndal, fyrrverandi ráðgjafi Pírata, tók Jón Gunnarsson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, sérstaklega fyrir í beinni útsendingu og nefndi mörg dæmi um hvers vegna það væri full ástæða til að tala um Sjálfstæðisflokkinn og spillingu í sömu setningu. Jóni blöskraði en orðið var tekið af Atla þegar hann ætlaði að telja upp fleiri dæmi.

Jón og Atli í Silfrinu.

Í skásta falli heimskulegt

RÚV ákvað að auglýsa stöðu útvarpsstjóra lausa til umsóknar en vildi ekki birta lista yfir umsækjendur. Það hleypti illu blóði í marga, meðal annarra Pál Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóra, sem hafði þetta um málið að segja: „Þessi ákvörðun stjórnar RÚV er í skásta falli heimskuleg en jaðrar þó líklega frekar við að vera hreint hneyksli. Staða útvarpsstjóra er þeirrar gerðar að um hana, og þá sem sækja um hana, getur ekki og má ekki ríkja nein leynd.“ Svanhildur Hólm hefur verið orðuð við starfið en enginn ráðinn enn.

Piss and Play

Furðufrétt mánaðarins fjallaði um nýtt kynlífstæki sem kostar tæplega 17 þúsund krónur. Kynlífstækið sem um ræðir heitir „Piss to Ass Plug“ en eins og nafnið gefur til kynna þá gerir tækið fólki kleift að pissa upp í rassinn á sér. Já, það er margt skrýtið í kýrhausnum.

Umrætt tæki.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Indriði læknir þreyttur á vottorðabákninu – „Ég endurnýja sömu sjúkraþjálfarabeiðnina sem sjúklingur hafði fengið í 10 ár í röð fyrir sama bakverkjavandanum“

Indriði læknir þreyttur á vottorðabákninu – „Ég endurnýja sömu sjúkraþjálfarabeiðnina sem sjúklingur hafði fengið í 10 ár í röð fyrir sama bakverkjavandanum“
Fréttir
Fyrir 10 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Í gær

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar

Þrír forsetaframbjóðendur bera af á samfélagsmiðlum – Þetta eru tölurnar
Fréttir
Í gær

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work

CCP og Smitten efst á nýjum lista Great Place to Work
Fréttir
Í gær

Tryggvi segir málið með ólíkindum – „Ég á það, ég má það“

Tryggvi segir málið með ólíkindum – „Ég á það, ég má það“
Fréttir
Í gær

Ófögur sjón mætti Kristjáni í gærkvöldi: „Maðurinn sem gerði þetta er í haldi lögreglunnar“

Ófögur sjón mætti Kristjáni í gærkvöldi: „Maðurinn sem gerði þetta er í haldi lögreglunnar“