fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Annáll – desember – Ungur drengur týndi lífi í sprengilægðinni

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 31. desember 2019 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú ljúkum við upprifjun okkar á atburðum ársins með desembermánuði. Yfirlit allra mánaða má sjá hér fyrir neðan.

Sjá einnig: Annáll janúar / Annáll febrúar / Annáll mars / Annáll apríl / Annáll maí / Annáll júní / Annáll júlí / Annáll ágúst  / Annáll september / Annáll október / Annáll nóvember

Dauðsfall í óveðri

Eitt af stóru málunum í desember var veðrið, sprengilægðin svokallaða. Mikið óveður geisaði um miðbik mánaðarins og þótt höfuðborgarbúar fyndu lítið fyrir því lék lægðin landsbyggðina grátt. Mikið tjón varð á mannvirkjum, en allt það fölnaði í samanburði við unga piltinn, Leif Magnús Grétarsson Thisland, sem féll í Núpá í Eyjafirði og lést. Leif fæddist í Noregi, átti norska móður og íslenskan föður. Hann flutti til Íslands eftir að móðir hans var myrt af fyrrverandi unnusta sínum. Leif féll í ána þegar hann var að hjálpa bónda að koma rafmagninu aftur á. Lík hans fannst nokkrum dögum síðar.

Leif Magnús Grétarsson Thisland.

Nágranni frá helvíti

Næstmest lesna frétt DV í desember fjallaði um Kristján Gunnar Valdimarsson, lektor við Háskóla Íslands og lögfræðing. Á heimili hans í vesturbæ Reykjavíkur hefur að sögn ríkt ófremdarástand og var hann sakaður um að bjóða unglingsstúlkum fíkniefni í skiptum fyrir kynlíf og hýsa vændiskonur. Lögreglan hefur margoft verið kölluð að heimili hans, í eitt sinn þegar Kristján var frelsissviptur, rændur og laminn. Kristján var handtekinn yfir jólin og hafa þrjár konur kært hann fyrir kynferðisbrot. 

Kristján Gunnar.

Dansdrama

Mest lesna frétt desember, og reyndar alls ársins, var hins vegar af öðrum toga og fjallaði um dansarann Javi Fernández Valiño sem rekinn var úr þáttunum Allir geta dansað því hann fór í taugarnar á dansfélaga sínum, Pólfaranum Vilborgu Örnu Gissurardóttur. Í samtali við DV sagði Javi þetta óheppilegt og að hann hefði haft gaman af því að dansa við Vilborgu.

Vilborg og Javi.

Sett ofan í við Heiðrúnu

Sem fyrr var hart tekist á í Silfrinu þegar að Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, rökræddu um kvóta og sjávarútveg. Heiðrún hafnaði því að íslensk útgerðarfyrirtæki væru með víðtæk fyrirtækjanet erlendis. Þau rök tætti Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingkona Pírata, í sig og birti lista um aflandseignir fólks í sjávarútvegi.

Kári og Heiðrún.

Ísland í dag

Hún var átakanleg frásögnin í DV af ástföngnu foreldrunum sem selja sig á íslenskum hótelum til að fjármagna eigin neyslu. Þeim hefur oft verið nauðgað og þau frelsissvipt. Þau hafa ekki séð börnin sín í sex mánuði og sjá enga leið út úr lífi sínu aðra en sjálfsvíg.

Vændi fíkn nauðgun

Kóngurinn fallinn

Engilbert Arnar Friðþjófsson, oftast kallaður Costco-kóngurinn, var settur í bann í hópnum COSTCO – Gleði, hópi sem hann stofnaði og telur 36 þúsund Íslendinga. Svo virðist sem Facebook hafi talið Engilbert hafa farið yfir strikið í einhverri færslu hans en hann vildi bara gleðja meðlimi, sem voru að vonum í áfalli yfir banninu. „Engilbert Arnar er ómissandi fyrir þessa síðu,“ skrifaði ein kona til dæmis. Nú er Engilbert kóngur án Costco-kastala.

Engilbert Costco-kóngur.

Lekamálið

Myndbandi var lekið á YouTube þar sem samtal Jóhannesar Stefánssonar uppljóstrara og fyrrverandi eiginkonu hans var sýnt, líklegast til að koma höggi á Jóhannes. Í myndbandinu mátti heyra Jóhannes hóta fyrrverandi eiginkonu sinni en hann sagðist hafa beðist afsökunar á athæfi sínu: „Á þessu tímabili upplifði ég mig í mikilli lífshættu. Ég var örvinglaður og tókst á við aðstæðurnar með því að drekka áfengi. Ég sagði hluti sem ég hef ætíð séð eftir og hef gengist við því og beðið alla hlutaðeigandi aðila afsökunar.“

Jóhannes Stefánsson.

Enn deilt um tónlist

Fyrir Dag íslenskrar tónlistar voru valin þrjú lög, sem þjóðin gat sungið saman, af samtökum listamanna sem standa að deginum. Lögin í ár voru „Ammæli“ með Sykurmolunum, „Enginn eins og þú“ með Auði og „Froðan“ með Geira Sæm. Enn á ný blossaði upp tónlistarreiði og gagnrýndu tónmenntakennarar lagavalið, fannst það óviðeigandi. Lagavalinu var ekki breytt.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala