fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Annáll ágúst – Flugdólgur og Freðinn: „Finnst fólki þetta almennt bara allt í lagi?“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 31. desember 2019 11:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við höldum áfram að fara yfir það sem bar hæst árið 2019 – nú er það ágústmánuður.

Sjá einnig: Annáll janúar / Annáll febrúar / Annáll mars / Annáll apríl / Annáll maí / Annáll júní / Annáll júlí

Tekjublaðið

Fjölmiðlar hafa lagt það í vana sinn að birta tekjur landsþekktra einstaklinga í svokölluðum tekjublöðum, en vegna breytinga hjá Ríkisskattstjóra dróst sú birting á langinn í ár. Loks í ágúst kom tekjublað DV út og kenndi þar ýmissa grasa. Við komumst til dæmis að því að Hafþór Júlíus væri tekjuhæsti íþróttamaðurinn með milljónir á mánuði og að Sólrún Diego, áhugakona um þrif, væri á lágmarkslaunum.

Ekki missa af Tekjublaðinu.

Uppsagnir á fjölmiðlum

Þrettán manns var sagt upp hjá fjölmiðlafyrirtækinu Sýn, sem er hluti af Vodafone, um miðjan ágúst. Meðal þeirra sem sagt var upp voru íþróttafréttamaðurinn kunni Hjörvar Hafliðason, Kristín Ýr Gunnarsdóttir og Sighvatur Jónsson, fréttamenn á Stöð 2. Uppsögnin kom Hjörvari í opna skjöldu en hann stóð keikur í viðtali við DV sama dag og honum var sagt upp. „Það er eins og það er. Nú bæti ég í sóknina á Dr. Football hlaðvarpinu en það er miðill sem ég hef trú á.“ Rekstur einkarekinna fjölmiðla dróst enn saman á árinu og var fjölmiðlamönnum á öðrum miðlum einnig sagt upp á öðrum tímum, til dæmis á Morgunblaðinu.

Hjörvar Hafliðason.

Flugdólgurinn

Hringbraut fullyrti að Þorbergur Aðalsteinsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari og landsliðsmaður Íslendinga í handbolta, hefði verið handtekinn á flugvelli í Noregi um miðbik ágúst. Var Þorbergur sakaður um dólgslæti og fyrir að hafa reynt að ráðast inn í flugstjórnarklefa meðan á flugi stóð. Þorbergur mætti í viðtal á Bylgjunni fyrir stuttu og sagði málið á misskilningi byggt, að norska lögreglan væri búin að biðja hann afsökunar. Kristjón Kormákur Guðjónsson, fyrrverandi ritstjóri Hringbrautar, mætti í kjölfarið í viðtal á Bylgjunni og sagði Þorberg fara með rangfærslur, sagði hann hafa verið í annarlegu ástandi í flugvélinni og sýnt ógnandi tilburði. Orð gegn orði.

Þorbergur og flugvélin.

Guðlaugi hótað

Gripið var til öryggisráðstafana í utanríkisráðuneytinu í kjölfar líflátshótana sem Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra fékk í tengslum við þriðja orkupakkann. Maðurinn sem hótaði Guðlaugi var þekktur fyrir að dreifa pólitískum áróðri á Facebook, á sinni eigin síðu og í ýmsum hópum. „Hins vegar er okkur ráðlagt að líflátshótanir beri að taka alvarlega. Þær hótanir sem mér hafa borist á samfélagsmiðlum vegna þessarar fréttar hafa þegar verið settar í farveg hjá Ríkislögreglustjóra,“ sagði Guðlaugur.

Guðlaugur Þór. Mynd: DV/Hanna

Vistaður í varðhaldi

DV birti einkaviðtal við Ingólf Steinar Ingólfsson sem var handtekinn og settur í varðhald í Kambódíu þar sem vegabréfsáritun hans til Kambódíu rann út. Það hafði þær afleiðingar að hann gat ekki tékkað sig út af hóteli sem hann gisti á né greitt reikninginn þegar að því kom, að hans sögn. „Ég lenti í þessu veseni af því vegabréfið mitt hvarf,“ sagði Ingólfur meðal annars og taldi sig sæta miklu óréttlæti.

Ingólfur Steinar ásamt kambódískum lögreglumanni.

Súrrealískt níðingssamfélag?

Grínistinn Björn Bragi Arnarsson tilkynnti nýja uppistandssýningu og internetið fór á hliðina. Sýningin hét Björn Bragi Djöfulsson og sá Anna Svava um að hita upp. Mislíkaði netverjum svo mjög að Björn Bragi væri snúinn aftur í uppistand eftir að myndband af honum að káfa á unglingsstúlku fór í dreifingu í október í fyrra. Átti atvikið sér stað eftir skemmtun hjá KPMG á Akureyri, en Björn var veislustjóri þar. „Er bara allt í góðu að fullorðinn maður sem nuddaði klofið á barni og náðist á myndband sé aftur accepted sem ehv ögrandi insult comic og virt listafólk sé að peppa hann? hvaða súrrealíska níðingssamfélagi er ég frá?“ skrifaði einn netverji til að mynda.

Björn Bragi og Anna Svava.

„Síðan nauðgaði hann mér“

Sigurður Gói Ólafsson varð fyrir fólskulegri líkamsárás og var nauðgað í frönsku borginni Marseille í júlí og opnaði sig um árásina í DV í ágúst. „Skyndilega réðst hann á mig, algjörlega upp úr þurru. Hann kýldi mig í síðuna og hrinti mér á magann. Því næst reif hann niður um mig buxurnar. Síðan nauðgaði hann mér,“ sagði Sigurður og bætti við: „Ég stirðnaði upp af hræðslu. Ég var viss um að hann myndi drepa mig. Ég hélt hreinlega að ég væri að fara að deyja.“

Sigurður Gói. Ljósmynd/Úr einkasafni

Vinkona Epstein

Nafn Dorrit Moussaieff, fyrrverandi forsetafrúar, var að finna í hinni alræmdu svörtu bók níðingsins Jeffreys Epstein. „Jeffrey Epstein bjó í sömu götu og ég í London einhverntímann á milli 1978 og 1983. Við áttum marga sameiginlega kunningja,“ sagði Doritt við DV. Epstein átti 45 ára fangelsi yfir höfði sér vegna mansals og barnaníðs sem hann var sakaður um eftir aldamót. Hann svipti sig lífi í fangelsi.

Er þetta í lagi?

Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, gagnrýndi tónlistarmanninn Auð á Facebook-síðu sinni eftir að hafa séð hann syngja lagið Freðinn á Arnarhóli. Bjarnheiður gagnrýndi að lagið hefði verið spilað snemma kvölds á fjölskylduskemmtun sem var að auki sjónvarpað beint á RÚV. „Hvernig á að útskýra fyrir börnum að boðskapurinn sem þessi marglofaði og vinsæli listamaður flytur sé vondur? Hvernig samræmist þetta forvarnarstarfi? Eða finnst fólki þetta almennt bara allt í lagi?“ spurði Bjarnheiður.

Bjarnheiður og Auður.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 

Einingaverksmiðjan og Rafmennt unnu til verðlauna á Verk og vit 
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“

Harmleikurinn á Akureyri – Nágranni ber fólkinu vel söguna – „Það fer rosalega lítið fyrir þeim“