fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Annáll – júní: Þrjú fórust í flugslysi

Ritstjórn DV
Mánudaginn 30. desember 2019 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við höldum áfram að rifja upp fréttir ársins – nú er komið að því sem bar hæst í júní.

Sjá einnig: Annáll janúar / Annáll febrúar / Annáll mars / Annáll apríl / Annáll maí

Flugslys við Múlakot

Júní hófst á sorglegum nótum þegar að lítil flugvél hrapaði við Múlakot í Fljótshlíð. Fimm manns voru innanborðs, allir Íslendingar. Hjónin Ægir-Ib Wessman og Ellen Dahl Wessman fórust í slysinu ásamt syni þeirra, Jóni Emil Wessman. Ægir-Ib, fæddur 1963, var flugmaður og starfaði meðal annars sem flugstjóri hjá WOW air, Jón Emil, fæddur 1998, var að feta sömu braut og var í atvinnuflugnámi við Flugskóla Íslands og Ellen, fædd 1964, var sjúkraþjálfari. Sonur hjónanna og ung kona voru einnig um borð en lifðu af. Þau voru flutt mikið slösuð á sjúkrahús í Reykjavík eftir slysið.

Hin látnu.

Fúll á móti

Það dró til tíðinda innan Sjálfstæðisflokksins þegar að flokkurinn hélt upp á níutíu ára afmæli sitt. Davíð Oddsson mætti ekki, en fór ófögrum orðum um flokkinn sinn í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins. Þar sagði að fámennt og tíðindalaust hafi verið á 90 ára afmælis flokksins á dögunum og hnýtt í heiðursgestina úr öðrum flokkum. Þá skrifaði Davíð: „En af hverju þurfti að læðast með veggjum með þetta afmæli? Það er vissulega megn óánægja í flokknum og þá ekki síst meðal kjósenda hans og hugsanlegra kjósenda með óskiljanlega framgöngu flokksins í orkupakkamálinu, þar sem hiklaust er byggt á blekkingum, sem raunar eru fjarri því að vera lofsverðar.“ Davíð hefur ekki enn sagt sig úr flokknum svo vitað sé en er orðinn mjög hliðhollur Miðflokknum.

Davíð Oddsson

Ólga í MR

Nokkuð var fjallað um starfsanda í Menntaskólanum í Reykjavík, MR, og lýstu starfsmenn ástandinu sem óboðlegu. Sigríður Helga Sverrisdóttir og Linda Rós Michaelsdóttir stigu fram í DV og sögðust hafa orðið fyrir einelti af hálfu nokkurra kennara og stjórnenda skólans. Lýstu þær uppsögnum og ógnarstjórn við skólann sem rektorinn Elísabet Siemsen vísaði á bug.  „Það er merkilegt að þrír kennarar sem sagt hefur verið upp eiga það allir sameiginlegt að hafa gagnrýnt starfshætti og stjórnunarhætti rektors,“ sagði Sigríður Helga. Mennta- og menningarmálaráðuneytið svaraði kvörtunum kennaranna og gaf það álit að ekki hefði átt sér stað einelti í skólanum.

Sigríður Helga og Linda Rós. Mynd: Eyþór Árnason

Klósettbursti í vatnsglasi

Leikmenn landsliðs Tyrkja í knattspyrnu voru ekki par sáttir við komuna í Leifsstöð, en þeir voru til Íslands komnir til að spila landsleik við Íslendinga í undankeppni EM. Tyrkir þurftu að bíða lengi á flugvellinum, liðið flaug frá Konya og þurfti að fara vel yfir öll vegabréf og slíkt. Þá voru Tyrkir reiðir eftir að þvottabursti birtist í Leifsstöð. Reiði Tyrkja hélt áfram á blaðamannafundi á Laugardalsvelli þar sem mörgum var heitt í hamsi. Utanríkisráðherra Tyrklands, Mevlüt Çavuşoğlu, blandaði sér í málið og lýsti yfir megnri óánægju í garð Íslendinga.

Ráðist á fjallkonuna

Fastur punktur í tilverunni í júní er sjálfur þjóðhátíðardagurinn. Venju samkvæmt flutti fjallkonan ljóð á Austurvelli og að þessu sinni kom það í hlut Aldísar Amah Hamilton. Þótti Aldís standa sig með prýði en íslenskir kynþáttahatarar sáu sig knúna til að tala hana niður. Fundu þeir mikið að því að Aldís væri af blönduðum uppruna, en faðir hennar bandarískur af afrískum uppruna. Innan Facebook-hópanna Stjórnmálaspjallið og Málfrelsið var hart deilt um fjallkonuna. „Þannig að hún er ekki Íslendingur heldur íslenskur ríkisborgari?“ spurði einn meðlimur og aðrir svöruðu að Aldís væri íslensk. Þá sagði meðlimurinn: „Ég er Íslendingur og stoltur af því … Þessi kona er amerísk og á að vera stolt af því líka.“ Sem betur fer dó þessi umræða frekar fljótt drottni sínum.

Aldís Amah.

Við kynnum: Bryndísi Líf

Í júní fengu lesendur DV einnig að kynnast áhrifavaldinum Bryndísi Líf sem birtir ögrandi myndir á Instagram með veigamiklum boðskap. Síðan þá hefur frægðarsól Bryndísar skinið skært og fylgjendum fjölgað.

Bryndís Líf.

Rekinn!

Helga Áss Grétarssyni var sagt upp störfum sem dósent við Lagadeild Háskóla Íslands um miðbik júní. Ástæða uppsagnarinnar var sögð sú að Helgi Áss hefði ekki uppfyllt þær skyldur sem kveðið er á um varðandi rannsóknir og ritrýnt efni, það er að ekki hafi komið nægilega mikið efni frá honum. Helgi, sem er einn þekktasti skákmaður landsins, tjáði sig um uppsögnina á Facebook, sagðist vera með lögmann í málinu og var ósáttur.

Helgi Áss.

Sauð upp úr – aftur

Upp úr sauð á Alþingi í byrjun júní, eins og svo oft áður, þegar frumvarp félagsmálaráðherra um að breytingu á lögum um félagslega aðstoð og almannatryggingar var rætt. Inga Sæland, þingkona Flokks fólksins, brast í grát og kvað það mikið óréttlæti að afnema ekki krónu á móti krónu-skerðinguna alfarið. Hún fordæmdi jafnaðarríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir að koma þessari skerðingu á. Þá tók Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, upp varnir fyrir Jóhönnu og var heitt í hamsi. „Menn þurfa aðeins að kunna hlutina áður en þeir taka upp í sig stór orð og á meðan ég er hér á þingi og hef málfrelsi. ÞÁ SIT ÉG EKKI ÞEGJANDI UNDIR SVONA LÖGUÐU. Jóhanna Sigurðardóttir, einn merkasti félagsmálaráðherra þessarar þjóðar, á annað og betra skilið frá kynsystrum sínum.“

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt