fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Annáll – Apríl – Morð í Mehamn og leitin að Litlakisa

Ritstjórn DV
Mánudaginn 30. desember 2019 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Við höldum áfram að rifja upp atburði ársins sem er að líða og nú er komið að aprílmánuði.

Sjá einnig: Annáll – Janúar / Annáll Febrúar / Annáll – Mars

Áhrifavaldar í klemmu

Það má segja að aprílmánuður hafi verið slæmur fyrir áhrifavalda þessa lands þar sem tveir af þeim vinsælustu urðu fréttaefni vegna svika við neytendur. Sólrún Diego var sá fyrri en DV afhjúpaði að Sólrún hefði auglýst vefverslun eiginmanns síns, Frans Veigars Garðarssonar, grimmt á Instagram, án þess að geta þess að verslunin væri í eigu hans. Við eftirgrennslan kom í ljós að Sólrún sjálf sat í stjórn fyrirtækisins og var prókúruhafi. Um var að ræða afar dulda auglýsingu og mislíkaði Sólrúnu fréttin svo mjög að lögfræðingar hennar sendu bréf á DV þar sem hótað var aðgerðum ef DV hætti ekki að fjalla um hana.

Sólrún Diego
Sólrún Diego.

Síðar í mánuðinum var komið að Tönju Ýri Ástþórsdóttur sem seldi skartgripi og glingur á áttföldu verði samanborið við nákvæmlega sömu vöru á Aliexpress. Gerði hún þetta undir merkjum Boss Babe, en tók aldrei fram á Instagram að hún sjálf ætti verslunina. Tanja var ekki sátt við afhjúpun DV. „Ég hef ekki haft neinn áhuga að ræða við fréttamiðla í langan tíma því ég styð ekki fréttamennsku sem snýst um að tala niður til fólks, gera lítið úr eða fara með rangt mál án þess að kynna sér málin til enda,“ skrifaði hún á Instagram, en þess ber að geta að hún skellti á blaðamann DV þegar hann vildi grennslast fyrir um fyrrnefnt fyrirtæki við vinnslu greinarinnar.

Tanja Ýr. Mynd: Skjáskot Instagram @tanjayr

Harmleikur í Mehamn

Það var sem reiðarslag fyrir þjóðina í lok apríl þegar Íslendingurinn Gísli Þór Þórarinsson fannst látinn í bænum Mehamn í Noregi. Gunnar Jóhann Gunnarsson hefur játað að hafa orðið Gísla að bana, en þeir voru hálfbræður. Samkvæmt nýjustu fregnum af gangi mála í Noregi þá var réttarhöldum frestað, en það stóð til að aðalmeðferð hæfist þann 2. desember næstkomandi. Nú er talið líklegast að réttað verði í málinu í febrúar. Gunnar Jóhann neitar að hafa komið að heimili Gísla Þórs með þann ásetning í huga að verða honum að bana. Hann á að baki langan sakaferil á Íslandi og hefur meðal annars verið dæmdur fyrir nauðgun og ofbeldisbrot.

Gísli Þór Þórarinsson

„Þetta sker getur átt sig“

Pistill Ögmundar Gíslasonar, fyrrverandi flugmanns WOW air, vakti gríðarlega athygli. Í pistlinum viðraði hann þá óánægju sína með að íslenska ríkið hefði ekki rétt flugfélaginu hjálparhönd áður en það varð gjaldþrota. „Eftir að hafa hugsað þetta þá hef ég tekið þessa ákvörðun: Ég mun ALDREI borga framar skatta á Íslandi. ALDREI! Og það fólk sem þekkir mig veit ég stend við svona fáránlegar yfirlýsingar. Ég mun þiggja þær greiðslur sem ég á rétt á úr ábyrgðarsjóði launa og ég ætla að þiggja atvinnuleysisbætur eins lengi og ég má, en ég mun aldrei aftur vera launamaður á Íslandi og greiða staðgreiðslu. Þetta sker getur átt sig. Þetta pakk sem er í ríkisstjórninni getur átt sig,“ skrifaði hann meðal annars. Hann starfar nú á erlendum vettvangi.

Ögmundur Gíslason. Mynd-Hringbraut

Ung kona lést

Að morgni 9. apríl lést ung kona á Landspítalanum. Konan hafði verið í teiti þar sem mikið var um eiturlyf. Þegar lögregla var kölluð til og hafði afskipti af henni fór unga konan í hjartastopp og báru endurlífgunartilraunir ekki árangur. Foreldrar konunnar voru ósáttir við aðferðir lögreglu, sögðu dóttur sína hafa verið handjárnaða og bundna á fótum en bættu við að hún hefði verið í geðrofi. Héraðssaksóknari tók málið til rannsóknar en ákveðið var að engin ákæra yrði gefin út vegna málsins.

Engin ákæra var gefin út í málinu. Mynd: Eyþór Árnason

Hæddust að meðlagsgreiðendum

Frétt DV um starfshætti Innheimtustofnunar sveitarfélaga vakti mikla reiði í samfélaginu. Var forstöðumaður útibús stofnunarinnar á Ísafirði til að mynda sakaður um ógnarstjórnun, einelti, furðuleg afskipti af einkalífi og sérkennilega framgöngu varðandi starfslok. Þá sagði fyrrverandi starfsmaður stofnunarinnar í Reykjavík frá því hvernig starfsmenn gerðu grín að meðlagsgreiðendum í Facebook-hópi.

Innheimtustofnun sveitarfélaga.

Heimsfrægð prinsessunnar

Indverska prinsessan Leoncie öðlaðist langþráða heimsfræg þegar spjallþáttaprinsinn Jimmy Fallon spilaði lag tónlistarkonunnar í þætti sínum um miðjan apríl. Jimmy skemmti sér konunglega og hermdi eftir söngstíl Leoncie og sagði: „Ég hef aldrei heyrt neinn syngja svona áður.“ Leoncie sagði síðar að hún hefði verið boðin í þáttinn en neitað, því þeir vildu ekki borga henni nóg.

Jimmy Fallon og Leoncie.

Farið úr böndunum

DV fjallaði ítarlega um Gistiskýlið að Lindargötu í Reykjavík og að þar væri rekið neyslurými fyrir sprautufíkla. Myndir sem DV birti sýndu fram á óboðlega umgengni, sóðaskap og illan aðbúnað í skýlinu. „Það hefur verið reynt að hafa einhverjar reglur um þetta, til dæmis að menn séu skráðir inn í hús. En þetta fer meira og minna úr böndunum, því það er miklu meiri aðsókn í þetta en húsið leyfir. Núna er það ekki bara þessi stóri hópur fólks sem er á götunni, heldur bætast við sprautufíklar, og meðal þeirra eru menn sem aldrei áður hafa nýtt sér gistiskýlið sem slíkt, en nýta sér aðstöðuna til að geta sprautað sig,“ sagði Tómas Jakob Sigurðsson, starfsmaður skýlisins, við DV. Hann var rekinn í kjölfarið.

Meðal mynda sem DV birti.

Horaður högni

Svo var það fréttin sem snerti fólk – hvarf Litlakisa, högna Svanhildar Hólm, aðstoðarkonu Bjarna Benediktssonar, og Loga Bergmanns fjölmiðlamanns. Hjónin leituðu kisans í 35 daga og teygði leitin sig til Selfoss. Að lokum var bænum þeirra hjóna svarað. „Hann er horaður og soltið óöruggur en greinilega mjög glaður að vera kominn heim,“ sögðu þau á samfélagsmiðlum, að springa úr hamingju og þakklæti.

Svanhildur og Logi.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Vilja sporna gegn því að fullorðnir einstaklingar nýti sér glufur í lögum til að hafa samræði við börn

Vilja sporna gegn því að fullorðnir einstaklingar nýti sér glufur í lögum til að hafa samræði við börn
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“

Paul Watson undirbýr Operation ICESTORM – „Tíminn er liðinn hjá heimsins alræmdasta hvalveiðimanni, Kristjáni Loftssyni“
Fréttir
Í gær

Þóra kemur rándýru árshátíðinni til varnar – „Það er algert rugl að kostnaðurinn hafi verið hálf milljón á mann“

Þóra kemur rándýru árshátíðinni til varnar – „Það er algert rugl að kostnaðurinn hafi verið hálf milljón á mann“
Fréttir
Í gær

Jóhann Scott flúði með fjölskylduna til Edmonton – Sakaður um að dreifa myndefni sem sýndi mæður misnota syni sína

Jóhann Scott flúði með fjölskylduna til Edmonton – Sakaður um að dreifa myndefni sem sýndi mæður misnota syni sína
Fréttir
Í gær

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu

Fulltrúadeildin greiðir loksins atkvæði um hjálparpakka til Úkraínu
Fréttir
Í gær

Tímamót á Reykjanesskaga: Næst lengsta gosið frá 2021 – Óvissa um framhaldið

Tímamót á Reykjanesskaga: Næst lengsta gosið frá 2021 – Óvissa um framhaldið