fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fréttir

Arnar segir karlmenn lúta í lægra haldi fyrir konum: „Kona er á engan hátt bundin siðferði“ – Kemur með óvenjulega lausn

Ritstjórn DV
Mánudaginn 2. desember 2019 17:25

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Áratugum saman hafa drengir og karlar átt á brattann að sækja í mannlífinu. Skrímslun karla og sérstaklega kynhvatar þeirra og kynlífs, hefur náð áður óþekktum hæðum.  Kvenfrelsarar segja það jafnvel líknarverk að taka þá af lífi, þótt ótrúlega hljómi.  Skrímslunin bylur á þjóðinni.“

Svona hefst pistill Arnars Sverrissonar, fyrrverandi yfirsálfræðings geðdeildarinnar á Akureyri, en pistillinn fjallar um skoðanir Arnars á málum kynjanna. Pistillinn ber heitið „Leggur hið þögla kyn árar í bát“ og talar Arnar þá um karlmenn sem „hið þögla kyn“ í pistlinum sem birtist á Vísi.

Arnar talar um það hvernig „máttur kvenhollrar menningar“ hellist yfir drengi í fjölmiðlum með þeim afleiðingum að þeir viti ekki hvað það er sem felst í því að vera karlmaður. „Þegar upp er staðið gæti slík túlkun karlmennskunnar haft vondar félagslegar afleiðingar og jafnvel fjárhagslega byrði fyrir samfélagið á sviðum eins og heilbrigði karlmanna, stuðlað að aukningu sjálfsmorða og upplausn fjölskyldna,“ segir Arnar í pistlinum og vitnar þar í ástralskan fjölmiðlafræðing.

„Það er ekki bara svo, að máttur kvenhollrar menningar hellist yfir drengi (og stúlkur) í fjölmiðlum. Það á einnig við um skólakerfið frá fyrstu kynnum. Þar er einnig kvenfrelsunarspjótunum gegn drengjum haldið á lofti. Norður-ameríski fræðimaðurinn, Christina Hoff Sommers, hefur um langa hríð rannsakað stöðu drengja. Hún segir: „[Í] skólum gætir þeirrar tilhneigingar, að þeim sé stýrt af konum í þágu stúlkna. Kennslustofur geta boðið uppá fjandsamlegt umhverfi fyrir drengi. Þeir hafa áhuga á  sögum, þrungnum fjörugum hasa, samkeppni og ævintýrum. Þær eiga ekki uppá pallborðið. … Karlhetjur hafa vikið fyrir telpnavaldinu (girl power).“

„Strákar eru heimskir“

„Það er væntanlega alkunna, að drengir standi sig almennt verr náms- og félagslega, heldur en stúlkur, bæði í grunnskólum og framhaldsskólum,“ segir Arnar í pistlinum og veltir því fyrir sér hver orsökin fyrir þessu gæti verið. „Norður-ameríski sálfræðingurinn, Helen Smith, útskýrir og  beinir orðum sínum til drengsins: „Lungann af æsku þinni hefur þú hefur alist upp við það, að stúlkur hafi klæðst bolum með áletruninni: „Strákar eru heimskir.“ Í heilsufræðinni [kynfræðinni] var þér kennt, að þú sért líklegur nauðgari. Þú heyrðir stelpurnar umhugsunarlaust tala um að skera ætti undan þér, vitaskuld, án þess að talað væri um fyrir þeim. Þegar í framhaldskóla kom var fjandskapurinn hnífstungu líkastur.“

Arnar segir umhverfið í háskólum einnnig vera karlfjandsamlegt því þar séu konur í miklum meirihluta. „Til dæmis um sjötíu [konur] af hundraði í Háskóla Íslands,“ segir Arnar og nefnir síðan dæmi að utan. „Í háskólum Bandaríkja Norður-Ameríku (BNA) og miklu víðar, eru karlnemendur litnir hornauga sem kynþrjótar og líklegir kynofbeldismenn. Sums staðar er þeim gert að taka námskeið eins og „Hún hræðist þig,“ og/eða horfa á  „Eintal skuðsins“ (Vagina Monolouges), leikrit kvenfrelsarans og leikritahöfundarins, Eve Ensler (f. 1953), og tileinka sér kvenfrelsunarboðskap hennar um flest það, er að kynlífi lýtur.“

Hann segir að í sumum háskólum felist „vígsla“ karla í því að sverja kvenfrelsurum hollustueiða. „Hann er á þessa leið: Ég viðurkenni forréttindi mín sem karlvera og heiti að gera iðrun og yfirbót. Karlnemendum, sem vilja leita skjóls og eiga stundir með hinum „forréttindaverunum,“ er meinað um rými til þess – enda þótt lögð sé blessun yfir samsvarandi þarfir kvennemenda. Sama á við um sérstakan félagskap karla eða réttindabaráttu þeirra. Þeir eru umsvifalaust kveðnir í kútinn með tilvísun til þeirrar „staðreyndar,“ að lög og siðir séu þeim hliðhollir.“

„Þyki kvennemenda sér kynferðislega misboðið er karlkynsnemandi (einn eða fleiri), dreginn fyrir „dómstól“ háskólans í jafnréttismálum. Dómar þessara utandómskerfisdómstóla hafa leitt til margvíslegra hörmunga fyrir karlnemendur (sem of langt mál yrði að telja upp hér). Sú hugsun er lögð til grundvallar starfsemi þeirra, að konan sé kynlífsfórnarlamb, sbr. orð tveggja nafntogaðra kvenfrelsunarfræðimanna: „Samræði fólks af gagnstæðu kyn felur í sér hreina og beina (formalized) fyrirlitningu á kvenlíkamanum. … Sonur sérhverrar konu í feðraveldinu situr hugsanlega á svikráðum við móður sína. Hann er óhjákvæmilega nauðgari eða kúgari annarra kvenna.“ (Andrea Dworkin (1946-2005)) Og: „Að mínum dómi er ævinlega um nauðgun að  ræða, eigi kona kynlíf og þyki sér misboðið. Samfarir gagnkynhneigðra er nauðgun, þar eð konur almennt hafa ekki nægan styrk til að gefa merkingarbært samþykki [til þess arna].“ (Catherine MacKinnon, f. 1946)“

Arnar segir dóma „umræddra gervidómstóla“ vera lið í frelsun kvenna, fórnarlambanna og undan svokölluðu kúgunaroki feðraveldisins. „Fórnarlambskvenfrelsun lýsir kynlífi kvenna þrungnu af hreinleika og goðsagnakenndri aðhlynningu. Lögð er áhersla á, að í öllu hinu illa, sem þessar „góðu“ konur hafa mátt þola, sé fólgin réttindabænaskrá þeirra.“ (Naomi Wolf, f. 1962) Undir þetta tekur annar norður-amerískur kvenrithöfundur: „Þetta er goðsögn um fórnarlömb. Endurskilgreiningar á nauðgun og kvenfrelsunarfræðin um „feðraveldið“ eru eins konar neðanmálsgreinar við kvenfrelsunarhreyfinguna.“ (Rene Denfeld, f. 1966)“

„Öfuguggar, óargadýr eða kjánagrey“

„Karlmenn eiga einnig á brattann að sækja í fjölskyldunni,“ segir Arnar. „Fjölskyldulíf og barneignir hugnast körlum stöðugt verr samtímis því, að konur sækjast eftir hnappheldunni. „Síðustu áratugina hefur hlutfall kvenna á aldrinum átján til þrjátíu og þriggja vetra, sem lítur á hjónaband sem einn af þýðingarmestu þáttum í lífi sínu, aukist úr tuttugu og átta af hundraði í þrjátíu og sjö af hundraði. Þróunin er þveröfug hjá körlum. Áður áttu þrjátíu og fimm af hundraði sama draum og kynsystur þeirra, en einungis tuttugu og níu af hundraði nú.“ (Helen Smith)“

Arnar veltir því fyrir sér hver skýringin á þessu gæti verið og vitnar hann í „Norður-amerísku fræðimennirnir, Dianna Thompson og Glen Sacks, útskýra: „Giftingartíðni í Bandaríkjum Norður-Ameríku hefur fallið um fjörtíu af hundraði síðustu fjóra áratugina. Hún hefur aldrei verið lægri. Það eru margar sennilegar skýringar á þessu, en sú [skýring] er sjaldan á borð borin, að norður-amerískir karlar hafa af óyfirlögðu ráði farið í giftingarandóf, sökum fjölskylduréttar, sem er ákveðið andsnúinn þeim.“

„Ætli feður sem slíkir séu orðir ónauðsynlegir? „Það er ekki einungis svo, að fjöldi vestrænna samfélaga hafi tekið þá ákvörðun, að feður séu ónauðsynlegir, heldur einnig, að flestir karla séu öfuguggar, óargadýr eða kjánagrey, sem þurfi að hafa eftirlit með, hvort tveggja í opinberu rými og á vettvangi einkalífsins.“ (Helen Smith) (Samanber íslensku jólasveinana og Bakkabræður.)“

„Hið ímyndaða kvenveldi“

Arnar vill meina að á meðan karlar dragi sig í hlé séu konur enn með óra um að endurreisa „hið ímyndaða kvenveldi. Arnar vittnar þá í sagnfræðinginn Martin Van Creveld sem lýsti þessu. „Í aldingarðinum, á dýrðartíma mildilegrar stjórnar kvenna, lifðu karlar og konur af landinu í ást og friðsemd, dýrkuðu frjósemisgyðjuna og höfðu ekki hugmynd um þátt karla í fjölgun mannkyns. Svo kom skrattinn úr sauðarleggnum. Karlar tóku sig saman um stofnun feðraveldisins,  innleiddu virðingarstiga, samkeppni og efnishyggju, hófu stríðsrekstur og gerðu konum lífið leitt.“

Hann segir að það hilli undir hið nýja kvennaríki. „Í kvenveldinu gerir réttur kvenna til fóstureyðinga þeim kleift að granda fóstrum að vild – og velja kyn fósturs,“ segir Arnar og heldur áfram. „Kona er á engan hátt bundin siðferði eða samningi gagnvart þeim, sem lét í té sæðið, hvort heldur með samþykki, blekkingum eða þjófnaði. Tækifærum til kynvals hefur enn fjölgað, þar sem vísindakarlar hafa nú fundið leið til að velja sæði eftir tegund kynlitninga. Samkvæmt upplýsingum frá hlutaðeigandi frjósemisfyrirtækjum eru pantanir kvenlitnings miklu fleiri – allt að tvöfalt fleiri.“ Hann segir forsvarsmann eins þeirra segja annað kynið ráða öllu í þessum málum. „Það eru konurnar, sem taka allar ákvarðanir í þessum efnum.“

„Hafa karlar valkost annan, en leggja upp laupana?“

„Smánun karla dregur margvíslegan dilk á eftir sér,“ segir Arnar. „Þriggja áratuga óhróður í fjölmiðlum, föðurandsnúnir dómstólar og kvenþrungnar kennslustofur, hefur haft það í för með sér, að karldrottnarar hafa milljónum saman lagt árar í bát – í menntun, hjónabandi, föðurhlutverki og jafnvel á vinnustaðnum.“ (Christina Hoff Sommers)“ Hann segir karla einnig draga sig í hlé bókstaflega. „Sjálfsmorðsfaraldur karla, lægri atvinnuþátttaka þeirra,  lakur menntunarárangur, lægri frjósemi, upplausn fjölskyldunnar, ásamt hægt vaxandi og stigbundnu hruni vestrænna samfélaga, má í hvívetna – að hluta til eða að öllu leyti – rekja til hraklegrar meðferðar (disposable) á körlum og niðurníðslu mennsku þeirra.“ (Peter Ryan)“

Arnar botnar pistilinn með því að velta því fyrir sér hvort karlar hafi annan kost en að leggja upp laupana. „Þeir berjast alla vega ekki, svo um muni, fyrir tilveru kyns síns,“ segir hann en segir kynfræðinga benda á óbrigðula leið.

„Karlar geta gerst konur: Kynsérfræðingar í Harvard, Wellesley og Tufts [háskólum] og meiriháttar kvenfrelsunarhreyfingum, trúa því, að drengir muni áfram vera kynfautar (og sennilega hættulegir), nema hefðbundin karlmennska verði taminn af þeim … Sú trúa, að rangri karlmennsku hafi verið haldið að dengjum, hefur orðið hvatinn að hreyfingu til „að deyfa samkeppnisanda þeirra, bæta tilfinningalega tjáningu og auka umhyggjusemi – í hnotskurn að kvenkenna þá í meira mæli.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 13 klukkutímum

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom

Hvað má barnið heita? – Herkúles en ekki Boom
Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala